08.02.1946
Neðri deild: 65. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2146 í B-deild Alþingistíðinda. (58)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o. fl.

Atvmrh. (Áki Jakobsson) :

Sölusamband ísl. fiskframleiðenda hefur haft með höndum eftirgrennslanir um sölu saltfisks og telur sig hafa komizt að þeirri niðurstöðu, að hægt muni að selja hann til Spánar, Portúgals og jafnvel til Frakklands. Frekari eftirgrennslanir hafa ekki verið gerðar. En það verð, sem vitað er um, að hægt er að fá, er þó nokkuð lægra en það, sem talið er nauðsynlegt hér heima til þess að fyrir fiskinn fáist það verð, sem ákveðið var í auglýsingu þeirri, sem gefin var út um það. En þessi mál eru enn á byrjunarstigi, og hefur Sölusambandið fengið fyrirskipun um að halda áfram eftirgrennslunum víðar og er nú að vinna að því.