23.11.1945
Efri deild: 36. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 608 í B-deild Alþingistíðinda. (588)
4. mál, dýrtíðarvísitala
Fjmrh. (Pétur Magnússon) :
Herra forseti. Ég er hv. fjhn. þakklátur fyrir, að hún hefur einróma mælt með því, að frv. á þskj. 4 fengi fram að ganga í aðalatriðum. N. hefur þó borið fram brtt. við það, bæði frá meiri hl. og minni hl. nefndarinnar.
Mun ég þá fyrst víkja að brtt. meiri hl. á þskj. 167, við 2. málsgr., en hún er um það, að því aðeins skuli miða vísitöluna við lægra verðið, að vara sé seld á tvenns konar verði og niðurgreiðsla hafi farið fram á hæfilegu neyzlumagni vörunnar og ekki undir því magni, sem reiknað er með í vísitölunni, að viðbættum 25%.
Það er rétt að skýra frá því, að áður en ég gekk frá frv., þá setti ég inn í það, að niðurgreiðslur færu fram á því magni, er áhrif hefði á vísitöluna, en við umr. í ríkisstj. varð það að ráði, að niðurgreiðsla færi aðeins fram á því magni, sem að dómi ríkisstj. væri hæfilegt. Nú hefur þetta aðeins praktíska þýðingu með smjörið. Flutt var inn smjör frá Ameríku og samþ., að það skyldi vera óskammtað, en deila má um það, hvort smjörmagnið, sem tekið er inn í vísitöluna, er nægilegt. Í ríkisstj. voru allir sammála um, að ekki væri ástæða til þess að auka magn það, sem skammtað væri af smjöri. Hins vegar var gert ráð fyrir því, að ef eins yrði með aðrar vörur, þá var sá varnagli sleginn, að það væri á valdi ríkisstj. að ákveða, hvað væri hæfilegur skammtur. Ég segi það eins og er, að ég legg enga höfuðáherzlu á, hvort brtt. verður samþ. eða ekki, en þó mundi samþykkt hennar fremur verða til spillis. Eftir orðum hv. 1. þm. Eyf., virðist honum ekki fyllilega ljóst, að óhjákvæmilegt væri að auka smjörskammtinn um 25% og þar með áhrif þess á vísitöluna, því að það lítur út fyrir, að hægt verði að fá smjör frá Danmörku, en þó að skammturinn yrði aukinn, er ég ekkert hræddur um, að öll framleiðslan seljist ekki. — Þó er ég ekki viss um, að unnendum landbúnaðarins væri þetta sérstakt ánægjuefni, því að ef nóg erlent smjör væri á markaðinum, gæti svo farið, að innlendir framleiðendur brynnu inni með eitthvað af sinni vöru, vegna hins háa verðs. Þó gæti þessi brtt. leitt til hinnar fráleitustu niðurstöðu, ef t. d. yrði farið að skammta saltfisk, enda þótt ég ætli ekki að segja, að til þess muni koma. Þetta væri hreint fráleit niðurstaða. Það er ekki sennilegt, að þetta komi fyrir og væri gert. En það gæti hugsazt, að stjórnin gripi til þess, til þess að halda niðri vísitölunni, að borga niður ákveðið magn af saltfiski. E. t. v. væri það ódýrasta aðferðin til þess að halda niðri vísitölunni.
Ég verð því að segja það, að mér finnst þessi brtt. vera, hvernig sem á hana er litið, sízt til bóta. Og ég get ekki séð, a. m. k. eins og sakir standa nú, að það sé áhætta að láta ákvæðið haldast óbreytt eins og það stendur í l. Ég býst við, að neytendur séu það vel representeraðir í ríkisstj. eins og stendur, að ekki sé sérlega mikil hætta á því, að gengið verði á rétt þeirra, þó að ákvæðið standi óbreytt eins og það er nú.
Hv. 1. þm. Eyf. drap á það, að það væri óheppilegt að hafa tvenns konar verð á sömu vöru, og það gæti leitt til ranglátrar misskiptingar á milli neytendanna, og gat þess, að smjörið með lága verðinu, ameríska smjörið, hefði ekki fengizt á Akureyri, og þar hefðu menn orðið að kaupa allt smjör, sem þeir keyptu, með hærra verðinu. Ég rengi ekki, að hv. þm. hafi farið rétt með þetta. En hitt veit hann, eins og allir vita, að smjörskammt hafa allir íbúar landsins fengið, jafnt í sveit og við sjó. Svo að það er sjálfskaparvíti, ef ekki allir landsmenn hafa aflað sér þessa ódýra smjörs. (BSt: Það hefur ekki verið sent þangað). Það verður sent þangað, ef þess er óskað, en það er ekki hægt að troða því upp á neinn mann, ef hann vill ekki nota smjörskammtinn. Það finnst mér lítt hugsanlegt, að engar verzlanir á Akureyri hafi fengið þetta smjör. En ef svo væri, getur það stafað af því, að ein verzlun á Akureyri hefur sýnt þá lofsverðu fyrirhyggju að hafa jöfnuð á smjörsölunni, Kaupfélag Eyfirðinga. En það hefur ekki verið gert annars staðar, sem aftur hefur leitt til þess, að íslenzkt smjör hefur yfirleitt ekki verið selt hér á opinberum markaði, heldur eftir kunningsskap eða einhverjum öðrum leiðum en gerist með aðrar vörur. Annars get ég ekki séð, að það sé neitt athugavert við það, þó að vara sé seld með tvenns konar verði. En vitanlega skal ég játa, að ef vísitöluna á að miða aðeins við lægra verðið, þá á það að vera eitthvert visst lágmark, sem selt er með lægra verðinu, ef ekki á að ganga á rétt neytendanna. Og ég hygg, að það sé ekki ofmælt, að stjórnin hafi alltaf haft opin augun fyrir því.
Þá hefur hv. meiri hl. fjhn. einnig borið fram brtt. við 2. gr. frv. Í þeirri gr. er svo mælt fyrir í frv., að verðlag á kjöti af sauðfé, sem slátrað er áður en venjuleg haustslátrun hefst, og á kartöflum, sem teknar eru upp fyrir venjulegan uppskerutíma, skuli eigi hafa áhrif á vísitöluna. En hv. meiri hl. fjhn. vill binda þetta því skilyrði, að á boðstólum sé nægilegt magn af þessum vörum með því verði, sem reiknað er með í vísitölunni. Það þarf vitanlega ekki að taka það fram, að þetta á að skiljast á þá leið, að til séu þessar vörur frá fyrra ári. (MJ: Eða sama ári með þessu verði). Ég segi þetta að gefnu tilefni frá hv. 1. þm. Eyf., sem vildi leggja þann skilning í þetta, að það væri nýslátrað dilkakjöt eða nýuppteknar kartöflur, sem átt væri við, en er misskilningur hjá honum — sem ég reyndar veit ekki, hvort hann hefur verið að segja í alvöru eða gamni. Það er eins um þetta atriði eins og fyrri brtt., að ég legg ekki ákaflega mikið upp úr því, hvort þetta verður samþ. eða ekki. En ég álít samt sem áður, að þetta sé heldur til hins verra. Að vísu er það svo, að hver stjórn, sem með völd færi, mundi reyna að haga því þannig, að til væru vörur frá fyrra árs framleiðslu með lægra verðinu, eftir að sumarslátrun byrjaði og eftir að byrjað væri að sumrinu að taka upp garðávöxt. Stjórnin tryggði þetta í sumar, eftir að ákveðið var að setja brbl., að geymt væri nokkuð af kjöti, og má segja, að það hafi verið nokkurs konar kjötskömmtun í sumar frá því í júnímánuði, Kjöt var þá selt aðeins vissa daga í vikunni, en stjórnin sá um það, að til væri frosið dilkakjöt eftir að sumarslátrun byrjaði. En það getur komið fyrir, að ekki sé hægt að tryggja þetta. Það kom fyrir hér í Reykjavík sumarið 1944 og víðar um land. Þá mun frystikjötsframleiðslan hafa verið alveg uppseld snemma í eða um miðjan júlí, og eftir það var ekkert dilkakjöt fáanlegt í Reykjavík, þar til haustslátrun byrjaði. — Nú skal ég fúslega játa það, að ef svo stendur á, að ekkert gamalt kjöt er til og byrjað er að slátra dilkum og kjöt af þeim selt með miklu hærra verði en reiknað er með í vísitölunni, þá má segja, að þetta sé nokkurs konar fölsun á vísitölunni. En ég vil þá spyrja um leið :. Hverjum verður sú fölsun að tjóni? Það er alveg vitað mál, að ef þetta hærra verð, óhemjulega miklu hærra verð, á að ganga inn í vísitöluna, þá mundi hver einasta ríkisstj. fyrirbyggja það, að sumarslátrun færi fram. Því að vitanlega getur ríkisstj. ekki sætt sig við það, að dýrtíðarvísitölunni sé hleypt upp um kannske 20–30 stig fyrir það, að slátrað sé nokkrum hundruðum dilka í höfuðstaðnum að sumrinu. Heldur en að slíkt kæmi fyrir, mundi stjórnin hlutast til um það, að engin slátrun færi fram á dilkum fyrr en venjuleg haustslátrun byrjar. Afleiðing af, þessu yrði svo sú að bæjarbúar eiga ekki þess kost að fá nýtt dilkakjöt einn eða einn og hálfan mánuð og framleiðendur eiga engan kost þess að fá það hagstæða verð, sem sumarslátrun yfirleitt gefur þeim. Og mér sýnist þetta vera til tjóns fyrir báða aðila, að ekki sé slátrað dilkum að sumrinu. Sumarið 1944 var það t. d. svo, að ekki var hægt hér í Reykjavík frá því í júlímán. og þar til haustslátrun byrjaði að fá dilkakjöt., heldur nautakjöt og kýrkjöt, oft miðlungi gott og alltaf við mjög háu verði. Ég er sannfærður um, að neytendum yfirleitt hefði þótt ákaflega gott að geta fengið nýtt dilkakjöt þetta sumar, eftir að gamla framleiðslan var búin, enda þótt þeir hefðu ekki fengið með vísitölunni upp borna þá verðhækkun, sem þetta hefði haft í för með sér, ef verðið hefði gengið inn í vísitöluna. Ég held að þeir hefðu ekki verið neitt verr settir með því að kaapa dilkakjötið á 13–14 kr. kg. en með því að kaupa gamalt kýrkjöt á 20 kr. kg. Og fyrir framleiðandann er ekki um það að spyrja, að það er tap fyrir hann að vera útilokaður frá sumarslátrun dilka.
Mér finnst því, að fjhn., þegar hún athugar. þetta, ætti að hugsa sig tvisvar um áður en hún, heldur fast við að knýja þessar brtt. í gegn. Ég get ekki séð, að þær séu til nokkurra bóta, en þær geta, þó að það sé ekki sennilegt, orðið til þess, að l. nái ekki tilgangi sínum.
Alveg sama gildir náttúrlega um garðávöxtinn, að öðru leyti en því, að hann hefur enn þá minni þýðingu, því að fram í september er það, ekki nema svo örlítið, sem kemur að jafnaði á markaðinn af garðávexti. Það er selt að sumrinu frá þessum fáu hlýju görðum, sem til eru hér. Og það er náttúrlega fjarri öllu lagi að láta annað eins koma fyrir og skeði hér 1942 eða 1943, þegar vísitalan hljóp upp um 6–10 stig af því, að það komu nokkrir pokar af nýjum kartöflum á markaðinn. Og þess konar má náttúrlega ekki koma fyrir aftur.
Út af brtt. hv. minni hl. fjhn. á þskj. 187 vildi, ég segja það, að ég sé nú ekki, að það hafi mikla þýðingu að breyta tímaákvörðuninni, sem þar greinir, í 15. febrúar úr 15. september. Það sé ég ekki, að skipti máli. Ef eitthvert samkomulag er komið á, hvort sem það er 15. marz eða á hvaða tíma sem er, mundi það verka alveg jafnt, þó að í þessum heimildarl. sé tilætlunin, að þau miðist við 15. sept. En ef hins vegar ekki næðist samkomulag fyrir þennan tíma, sem til er tekinn í brtt., þá mundi það leiða til þess, að það þyrfti að setja ný brbl. um þetta, og það sé ég ekki, að sé neinn vinningur.
En aðalbrtt. hv., minni hl. n. er við 2. gr., um það, að skipuð sé 5 manna nefnd, sem hafi það verkefni að gera till. um lækkun dýrtíðar í landinu með þátttöku allra félagsstétta, meðal annars með lækkun á verði innlendra neyzluvara, lækkun kaupgjalds, verzlunarálagningar, farmgjalda, byggingarkostnaðar, iðnaðarvara o. s. frv. Ég vil taka þessa brtt. til athugunar í fullri alvöru. En ég er hins vegar í nokkrum vafa um það, hvort hún á heima í sambandi við þessa löggjöf, sem hér liggur fyrir frv. um. Í raun og veru stendur hún ekki í neinu sambandi við hana, og undir öllum kringumstæðum vildi ég mjög eindregið mælast til þess, að hv. þm., sem hana flytur, taki þessa brtt. sína til baka til 3. umr. Það er vitanlega því aðeins gagn að því að samþ. aðra eins brtt. og þessa, að einhver alvara sé á bak við hana. Og þó að einhver alvara sé á bak við hana hjá einum eða tveimur flokkum þingsins, þá er það ekki nóg, heldur verður að vera samkomulag um það meðal fleiri flokka í þinginu og landsmanna yfirleitt að vilja leggja inn á verðlækkunarbraut. Og þó að slík till. sem þessi næði fram að ganga í þinginu, t. d. með atfylgi tveggja þingflokka, þá yrði hún aðeins pappírsgagn, nema því aðeins, að á eftir næðist samkomulag um að vinna í einlægni og alvöru að þessum málum. Þetta sýnist mér, að væri hægt að taka til athugunar á milli umr., þannig að ræða fyrst innan ríkisstj. um það, og þá innan þingflokkanna, og ef samkomulag næðist um það að gera tilraun þá, sem hér er farið fram á, þá er hægt að gera hana alveg jafnt sjálfstætt eins og í sambandi við þetta frv., sem hér liggur fyrir. — Hv. 1. þm. Eyf. veik að því í ræðu sinni hér í gær, að dýrtíðinni væri haldið uppi í landinu m. a. með innflutningshöftum. Hann talaði um það sérstaklega, að bannaður væri innflutningur á húsgögnum og einhverjum fleiri vörutegundum. Þetta er að nokkru leyti rétt og að nokkru leyti ekki rétt. Vegna gjaldeyrisástandsins, sem nú er ríkjandi hjá okkur, vegna þess, hve gjaldeyrisinneignin hefur farið ört lækkandi, hefur ekki verið hægt að komast hjá því, að nokkuð strangar innflutningshömlur væru áfram frá þeim löndum, sem krefjast greiðslu í dollurum eða öðrum vissum gjaldeyri. Aftur á móti hafa verið gefin rífari innflutningsleyfi frá löndum, sem taka við greiðslum í sterlingspundum, heldur en á a. m. k. áratug. Síðustu mánuðina hafa engar teljandi innflutningshömlur gilt um vörur frá Bretlandi t. d., nema það hefur verið spyrnt á móti innflutningi á hreinum skranvörum. Að öðru leyti hefur verið alveg frjáls innflutningur þaðan á vörum, sem hægt hefur verið að fá. Náttúrlega er það takmarkað, sem hægt er að fá frá Bretlandi af vörum, en það er vaxandi innflutningur þaðan. Ég býst við, að sama gildi um innflutning frá Danmörku og Noregi og yfirleitt frá þeim löndum, sem taka sterlingspund gild sem greiðslu. Ég fullyrði, að stjórnin hefur haft opin augu fyrir þessu. Hins vegar verður hún að sjá fótum sínum forráð, og það dugar ekki að nota upp alla dollara, sem þjóðin á, og standa svo uppi þannig, að ekki sé hægt að flytja inn þær nauðsynjar, sem þannig stendur á um, að helzt eða aðeins fást fyrir dollara, svo sem kornvöru, sem við væntanlega um nokkurri ókominn tíma getum ekki flutt inn nema frá Ameríku. Og ástæðan er sú til þess, að innflutningshömlur hafa verið á vörum bæði frá Bandaríkjunum og Svíþjóð, að þessi lönd taka ekki nema dollara í greiðslu fyrir vörurnar, en þessar innflutningshömlur hafa ekki verið gerðar í því skyni að vernda innlendan iðnað, til þess að innlendir framleiðendur gætu haldið fram því verði á vörum, sem þeir hafa. Og ef allt fer með felldu, líður ekki á löngu þangað til breyt. verður á þessu. Það er t. d. gert ráð fyrir því um Danmörk, að ekki líði á löngu, þangað til hún getur selt okkur ýmsar vörur. Og vitanlegt er, að Stóra Bretland leggur áherzlu á að auka útflutningsverzlun sína sem allra örast.
Fleira held ég, að ekki hafi komið fram í umr. um þetta, sem gefi sérstakt tilefni til andsvara.