06.12.1945
Efri deild: 46. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 639 í B-deild Alþingistíðinda. (616)

4. mál, dýrtíðarvísitala

Frsm. minni hl. (Bernharð Stefánsson):

Herra forseti. Ég ætla ekki að skipta mér af þessum reiðilestri hv. þm. Barð. (GJ) yfir flokksbróður sínum og samstarfsmanni, en undarlegt þykir mér, að hann lét þetta allt bitna á þessum tveim mönnum, hv. 1. þm. Reykv. og hv. 3. landsk. Hv. 7. landsk. (KA) er t. d. líka í fjhn. með þeim og hefur sömu afstöðu til þessa máls eins og þeir, og hefði hann því ekki átt að gleyma honum. Og það, sem hann sagði um þessa tvo hv. þm., það hlýtur að gilda um hér um bil allan hans flokk, Sjálfstfl., og samstarfsflokka hans, því að hvernig hefðu þessi launal. getað orðið til, ef það hefðu aðeins verið þessir tveir menn, sem hefðu viljað hafa þau í því formi, sem þau voru gefin út? Vitanlega er það meiri hl. Alþ., sem endanlega samþ. launal., sem ber ábyrgðina á þeim, en ekki þessir tveir menn.

Forseti upplýsti það, að það væri ekki af neinni vangá, að fyrri till. hv. meiri hl. fjhn., sem bornar voru fram við 2. umr. þessa máls á þskj. 167, væru teknar hér einmitt á dagskrá. Þær eru á dagskrá af sömu ástæðum og mínar till., sem teknar voru aftur til 3. umr., en ekki endanlega. Eru þær því hér til umr. og því algerlega heimilt að taka þær upp. En hv. þm. Reykv. sagði, að þær hefðu verið settar á dagskrá af vangá. Það er náttúrlega smekksatriði og þýðir ekki að deila við þennan hv. þm. um það, hvort frv. það, sem hér liggur fyrir, er lítið frv. eða ekki. Hv. þm. hélt því fram í þessu sambandi, að frv. breytti eiginlega engu í þessum efnum og þess vegna væri það lítið frv. Það breytir því, að það framlengir það ástand, sem ekki var ætlazt til, að stæði lengur en til 15. september s. l., og það hefði stundum þótt allstórt mál, ef um það væri að ræða að verja 10, 20 eða 30 millj. kr. úr ríkissjóði. Það hafa ekki verið lagðar fram áætlanir um, hvað þetta frv., muni kosta, en í sambandi við annað mál er gert ráð fyrir, að greiðslur úr ríkissjóði varðandi mál þessi verði allmiklu meiri en nú er gert ráð fyrir, ef þessar ráðstafanir eiga að koma að því gagni, að vísitalan hækki ekki. Síðan fannst þessum hv. þm., að ég væri að hengja stórmál aftan í þetta frv. með till. mínum, en mér er ómögulegt að sjá annað en að þetta sé sama málið. Frv., sem hér liggur fyrir, fjallar um það að gera ráðstafanir til þess að vísitalan hækki ekki — en aðeins til bráðabirgða. En mínar till. eru um það að gera tilraun til þess að koma í veg fyrir þetta til frambúðar. Mér finnst hér vera um nákvæmlega sama málið að ræða, þótt það séu sérstök málsatriði, sem mínar till. fjalla um.

Þessi hv. þm. tók allvinsamlega í þá hugmynd, sem ég hef varpað hér fram, en það þyrftu að fara fram svo miklir samningar milli flokka og stétta áður en slík n. yrði skipuð, sem till. mínar gera ráð fyrir. En ég hefði gaman af að spyrja hann: Hvenær á að byrja á að breyta þessum málum til bóta, ef ekki má stinga upp á neinum aðgerðum í þessum efnum? Ef svo er, verður ekki byrjað á þessu fyrr en allt verður komið í strand.

Hv. 1. þm. Reykv. var enn þá að tala um það, að till. mínar væru bornar fram sem kosningabeita. Hann má hafa hvaða hugmyndir um þetta sem hann vill, en það er nú svo að Framsfl. hefur orðið var við það, að það er ekki sérstaklega vinsælt í landinu að berjast á móti dýrtíðinni. Framsfl. hefur gert sér þetta ljóst frá upphafi, en hann hefur samt barizt gegn dýrtíðinni og ástæðan er sú, að hann hefur álitið þetta skyldu sína.

Ég ætla ekki að fara að ræða um stjórnarmyndunina, þótt hv. þm. gæfi tilefni til þess. Hann sagði, að þessar till. kæmu fram frá Framsfl., þeim eina flokki, sem hefði neitað að gera samninga um þessi mál. Þetta eru hreinustu öfugmæli, þar sem Framsfl. var ávallt reiðubúinn til þess að taka þátt í samtölum um þetta mál, en á því strandaði, að hinir flokkarnir fengust ekki til þess að semja um neinar aðgerðir í þessum málum. (MJ: Til þess að framlengja ekki valdasetu þáverandi ríkisstj.) Ég býst við, að nýsköpunarhjal stjórnarflokkanna og annað, sem nú er hrópað um í blöðum þeirra, sem eru tífalt fleiri en blöð Framsfl., eigi að hafa áhrif á kjósendur meðan að sýnir sig ekki til fulls, að hve miklu leyti þetta er skrum og að hve miklu leyti veruleiki. Hv. þm. sagði, að till. meiri hl. n. væri illa orðuð og segði annað en meint væri. Þetta sannar, að ég hef á réttu að standa. Hæstv. ráðh. hafði sama skilning á þessu efni og ég, þann, að till. ætti við útlent smjör. Það er ljóst, að þm. hafa misskilið sína eigin tillögu. Þeir höfðu frv. til fyrirmyndar um orðalag, en það sýnir, hversu djúpt þeir hafa lagzt, að orðalagið skyldi þurfa að breytast, svo að skiljanlegt yrði.

Þá sagði hv. þm., að íslenzkt smjör sæist ekki á markaði. En ég get upplýst, að sums staðar sést aðeins íslenzkt smjör, til dæmis á Akureyri. Þar er það skammtað, ekki að tilhlutun hæstv. ríkisstj., heldur mjólkursamlags Eyfirðinga. Þessi till. gerir það að verkum, að menn verða að kaupa smjör þar á Akureyri á hærra verði. — Hv. þm. gerði skop að orðum mínum um tvenns konar verð á smjöri: Ágætt að kaupa íslenzkt smjör á tíföldu verði, bara ef það fengist! Ég skal geta þess, að til Akureyrar kom ekkert útlent smjör og Akureyringar gátu fengið nóg af íslenzku smjöri og fá enn. Það er þess vegna skrýtið að segja, að íslenzkt smjör fáist ekki. (MJ: Við sjáum ekki norður á Akureyri og étum ekki það smjör, sem Akureyringar éta).— Hv. þm. Barð. (GJ) tók það fram, sem ég hafði annars áður sagt, að það væri fleira en íslenzka smjörið, sem væri dýrara hér en sams konar erlendar vörur. Sama gildir um vinnuaflið, eins og hv. þm. Barð. réttilega benti á. Hvernig færi, ef erlendu verkafólki væri leyft að flytja til landsins að ráði? Þá má og nefna verðlag á húsgögnum. Hvernig mundi fara, ef leyfður væri innflutningur sænskra húsgagna? Þannig mætti lengi upp telja.

Lífið í landinu er dýrt. Þjóðinni hefur vegnað vel á stríðsárunum og hefur haft aðstöðu til að bæta hag sinn á margan hátt. En nú er dýrtíðin komin á það stig, að úrbóta verður að leita. Það verður að finna leið út úr þeim ógöngum, sem við erum komnir í, og það getur engin stétt skorið sig út úr. Það þarf að gera víðtækar ráðstafanir, ef við eigum að komast á svipað stig og annars staðar er, og það getur verið, að það verði gert. En það mætti líka taka eina stétt út úr og knýja fram svipað verðlag landbúnaðarafurða og er í Danmörku. Hið pólitíska ástand er þannig, að hægt væri að fara þessa leið. Nú hefur hæstv. landbrh. það á valdi sínu. Afleiðingin yrði tæming sveitanna. En er það frá þjóðhagslegu sjónarmiði rétt að fá ódýrari vörur frá útlöndum, þótt þess sé kostur? Er það rétt að gera alla iðnaðarmenn landsins atvinnulausa með því að flytja erlenda iðnaðarmenn til landsins? Eða fara þannig með verkamenn, með því að flytja inn verkamenn frá útlöndum? Er það yfirleitt rétt að útiloka innlenda framleiðslu? Hingað til hefur ekki verið litið svo á, að þessi leið væri hin rétta, þjóðhagslega séð. Það hefur verið litið svo á, að allar þessar stéttir séu nauðsynlegar, en þá þurfa þær að hafa hlutfallslega svipaða fjárhagsafkomu.

Ég hef enga trú á, að það ástand, sem nú ríkir, geti haldizt til frambúðar. Það verður einhvern tíma að snúa við, og þessi till. mín er nú ekki um annað en það, hvort ekki gæti nú orðið samkomulag um að fara að spyrna fótum við í þessu efni.