11.04.1946
Neðri deild: 107. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 681 í B-deild Alþingistíðinda. (678)

2. mál, eignarnám lóðarréttinda og mannvirkja á Siglufirði

Frsm. (Þórður Benediktsson):

Viðvíkjandi ræðu hv. 2. þm. Eyf. vil ég með leyfi hæstv. forseta lesa það upp, sem stendur á fylgiskjalinu, sem um þetta mál fjallar:

„Forseti Íslands gerir kunnugt: Atvinnumálaráðherra hefur tjáð mér, að ákveðið sé að hefja nú þegar byggingu 10 þús. mála síldarverksmiðju á Siglufirði. Samningaumleitanir stjórnar síldarverksmiðja ríkisins um kaup á nauðsynlegum lóðarréttindum og mannvirkjum, sem á lóðunum eru, hafa ekki borið árangur, og ber því brýna nauðsyn til að þessi lóðarréttindi og mannvirki verði tekin eignarnámi.“

Það liggur ekkert fyrir, sem afsannar þessi orð, og ég tel því orð hv. 2. þm. Eyf. um þetta ómerk á meðan.