21.03.1946
Efri deild: 89. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 684 í B-deild Alþingistíðinda. (692)

3. mál, Tunnuverksmiðja á Siglufirði

Frsm. (Steingrímur Aðalsteinsson) :

Herra forseti. Það gegnir mjög svipuðu máli um þetta mál og það, sem síðast var verið að afgr. (frv. um eignarnám á lóðarréttindum og mannvirkjum á Siglufirði). Það er eftir beiðni stjórnar síldarverksmiðja ríkisins, að gefin hafa verið út brbl. 20. júní s. l. um heimild til þess að taka leigunámi Tunnuverksmiðju Siglufjarðar til afnota fyrir síldarverksmiðjur ríkisins.

Ég sé ekki ástæðu til þess að fjölyrða neitt frekar um þetta, en skal aðeins taka fram í tilefni af því, sem hv. þm. Barð. sagði í síðari ræðu sinni um mál það, er var hér til umr. næst á undan, að það hlytu að vera mjög veigamiklar upplýsingar, sem allshn. hefði ætlað að afla sér, þar sem hún hefði séð ástæðu til að draga svo lengi afgreiðslu málsins til að bíða eftir þeim, Þá held ég, að allshn, hafi ekki litið svo á, að þær hefðu neina afgerandi þýðingu fyrir afgreiðslu þessa máls þær upplýsingar, sem þó var talað um að fá, en þótti það æskilegt. En þrátt fyrir það, að hún fékk ekki þessar upplýsingar, þá var hún sammála um að mæla með, að bæði frv. yrðu samþ., og það gerði hún vegna þess, að hún treysti því, að áður en gripið var til þess að gefa út þessi brbl., þá hefðu legið fyrir ríkisstj. og hæstv. forseta, sem l. gefur út, upplýsingar um það, að l. hefði verið þörf. Allshn. var því einnig sammála um að mæla með því, að frv. yrði samþ., sem sé að þessi brbl. verði staðfest af Alþingi. Fyrir hönd n. vil ég leggja til, að þetta frv. verði samþ., sem hér liggur fyrir.