15.03.1946
Sameinað þing: 33. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2151 í B-deild Alþingistíðinda. (72)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o. fl.
Eysteinn Jónsson:
Ég held, að ég muni það rétt, að Bretar hafi tilkynnt, að þeir ætluðu að afhenda flugvöllinn í marz. — Út af þessari tilkynningu langar mig að spyrja hæstv. ríkisstjórn og þá víst einkum atvmrh., sem hefur með flugmál að gera, hvaða ráðstafanir hafa verið gerðar til að taka við rekstri flugvallarins og hvort ekki muni þurfa að setja einhver lög í því sambandi. Og ef svo væri, hvort sú löggjöf væri í undirbúningi.
Þar sem atvmrh. er ekki við, vil ég spyrja hæstv. menntmrh., hvort hann geti nokkrar upplýsingar gefið. En ef svo er ekki, vil ég leyfa mér að biðja hann að koma þessari fyrirspurn á framfæri við atvmrh.