25.02.1946
Neðri deild: 74. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 688 í B-deild Alþingistíðinda. (723)
115. mál, tunnusmíði
Atvmrh. (Áki Jakobsson):
Herra forseti. Viðkomandi fyrirspurn frá hv. þm. V.-Húnv. vil ég taka fram um þetta uppboð á Siglufirði, að tunnuverksmiðjan á Siglufirði er samvinnufélag, stofnað árið 1937 eða 1938, að mig minnir, og var lengi fastur póstur á fjárl. að veita ríkisábyrgð til rekstrar þessarar verksmiðju. Þessar ábyrgðir hafa fallið á undanförnum stríðsárum, þar sem forstöðumaður þessarar verksmiðju var tepptur erlendis og starfsemi tunnuverksmiðjunnar lá niðri að mestu leyti, a. m. k. voru ekki framleiddar tunnur í henni, heldur aðeins botnar og gjarðir og þess háttar. En að mestu hefur starfsemi verksmiðjunnar legið niðri. Þessar ábyrgðir hafa því fallið, og ríkissjóður hefur leyst þær út með 267 þús. kr. Enn fremur er fallinn á þessa upphæð málflutningskostnaður. Það var höfðað mál á hendur tunnuverksmiðjunni, og fjmrh. annaðist þá innheimtu. Það er sennilega ekki óvarlegt að segja, að skuldir þessarar verksmiðju séu kringum 300 þús. kr. Það var gert fjárnám í eignum tunnuverksmiðjunnar, sem voru hús og vélar, og fjmrh. og atvmrh. töldu ekki rétt að láta uppboðið fara þannig, að þessar eignir yrðu seldar fyrir lágt verð, þar sem búast mætti við, að ekki væri um aðrar eignir að ræða til þess að taka upp í þessar skuldir en þær, sem búið væri að taka fjárnám í. Og þessar eignir voru seldar ríkissjóði fyrir 260 þús. kr. allar saman, þannig að það munu vera enn þá 30–40 þús. kr., sem ódekkaðar eru, sem ég veit ekki, hvort þetta félag á nokkrar eignir upp i. En forstöðumaður þess, sem nýlega kom til landsins, hefur skýrt frá því, að hann sé að ganga frá reikningsuppgjöri og muni leggja það fyrir ráðuneytið.
Um annað, sem fram kom í ræðu hv. þm. V.-Húnv., vil ég taka fram nokkur atriði. Hann taldi spursmál, hvort rekstur tunnuverksmiðjanna ætti ekki að vera einstaklingsrekstur eða bæjarrekstur. En í frv. er gefin heimild til ríkisrekstrar á þeim. En að mínu áliti getur vel komið til mála bæjarrekstur á þessum verksmiðjum að einhverju eða öllu leyti, og um það yrði þá sérstaklega að ræða við þessi bæjarfélög. Þetta er ákaflega viðkvæmt mál fyrir Akureyringa og Siglfirðinga. Þetta er vetrarvinna, sem unnin er við þessar verksmiðjur. Og það er mikill áhugi fyrir því á Siglufirði og Akureyri að koma upp tunnuverksmiðju, til þess að bæta úr því atvinnuleysi, sem þar er að vetrinum, og t. d. bæjarstjórnin á Akureyri hefur látið þetta mál mjög mikið til sín taka. Það er enn óákveðið, hvernig starfræksla þessara tunnuverksmiðja yrði, ef til kæmi, og ríkisstj. hlyti að ræða það við viðkomandi bæjarstjórnir. En ég hef ekki orðið var við áhuga hjá einstaklingum fyrir þessum atvinnurekstri. Það var ein tunnuverksmiðja hér á landi, sem rekin var af einstaklingum nokkuð mörg ár fyrir stríð, en átti örðugt uppdráttar. Ég býst við, að það fýsi ekki marga að leggja út í þann atvinnurekstur sem einstaklingar. Honum er þannig varið, að áhættan við hann er geysimikil, ef hann er rekinn á þann hátt, að sá sem reksturinn annast, er ekki öruggur um afsetningu. Það var ákaflega miklum erfiðleikum bundið fyrir innlenda tunnuframleiðendur að koma út tunnum, því að hingað komu sænskir kaupmenn, sem lánuðu síldartunnur við vægum kjörum og tóku hallann af því aftur í öðrum viðskiptum. Þetta gerði tunnuverksmiðjunum ákaflega erfitt fyrir, og má búast við, að það verði ekki á færi einstaklinga að reka slík fyrirtæki, og jafnvel ekki á færi bæjarfélaganna, nema því aðeins, að þau njóti stuðnings ríkisins til þess að geta tryggt sér afsetningu á tunnunum.
Hv. þm. V.-Húnv. vill í fyrsta lagi fella niður 4. gr., sem er um eignarnámsheimild, sem hann taldi ófært að hafa í frv. Í gr. þessari segir, að ríkisstj. sé heimilt að taka eignarnámi lóðir, hús og önnur mannvirki vegna tunnuverksmiðjanna. Auðvitað yrði þessi heimild notuð í þeim tilfellum aðeins, sem það getur talizt alveg nauðsynlegt. Þetta eru nú tiltölulega fáir staðir, t. d. á Siglufirði, þar sem telja má, að þetta geti komið til greina, en sumir eru í eigu prívatmanna, þar sem viðbúið er, að þurfi á eignarnámsheimild að talda til þess að geta fengið þær lóðir, því að það skiptir miklu máli, að valinn sé góður staður, með tilliti til uppskipunar á efni og ýmislegs fleira, sem kemur til greina. Ég held, að ekki sé ástæða til að óttast, að þessari heimild verði á nokkurn hátt misbeitt: Það er sett takmörkun í enda gr., sem verður að binda sig við, sem sé sú takmörkun, að þetta verði aðeins gert, ef það er nauðsynlegt. Það mun enginn leika sér að því að taka hús eignarnámi í þessu skyni. Og svo í öðru lagi, ef til þess kæmi, að beita þyrfti slíku eignarnámi, væri hyllzt til þess að taka húslausar mannvirkjalausar lóðir, og annað hefur í rauninni ekki komið til greina. Ég tel því ástæðulaust að fella niður þessa heimild, enda takmörkun í gr., sem fyrirbyggir, að þessu geti orðið misbeitt.
Þá leggur hv. þm. til breyt. á 6. gr., um reksturinn, að ákvæði skuli um það sett, að síldarútvegsnefnd hafi stjórn tunnuverksmiðjanna með höndum. Í fyrsta lagi er það enn þá alls ekki ljóst, með hvaða hætti þessar tunnuverksmiðjur verða, hvort þær verða ríkisfyrirtæki, hvort þær verða reknar með samtökum ríkis og bæja eða eingöngu af bæjunum, með einhvers konar aðstoð ríkisins. Ég tel, að svona heimild eins og felst í 1. og 2. gr. geti gefið tilefni til samninga við bæjarstjórnirnar. Það er ekki meining ríkisstj., ef vilji er fyrir hendi hjá bæjarfélögunum á Akureyri og Siglufirði að reka þessar verksmiðjur áfram eftir sínu höfði, að hindra þessi bæjarfélög í því og taka þetta af þeim, heldur mundi þá ríkisstj. reyna að gera við þau samninga, sem tryggðu þessum bæjarfélögum öruggan rekstur á þessum fyrirtækjum. Annars tel ég of snemmt að ákveða þetta, hvort hér sé um ríkistunnuverksmiðjur að ræða eða ekki, og mér sýnist till. hv. þm. hanga saman við þessa breyt. á 6. gr.
Ég segi svo ekki fleira um þetta.