27.02.1946
Neðri deild: 76. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 690 í B-deild Alþingistíðinda. (726)

115. mál, tunnusmíði

Frsm. meiri hl. (Ásgeir Ásgeirsson) :

Síðan umr. var frestað, hefur. fjhn. haldið fund um þetta mál og orðið sammála um að mæla með brtt. frá minni hl. n. við 4. gr., um það, að gr. falli niður. Ég vil aðeins taka það fram, að þetta er sú gr., sem fjallar um eignarnámsheimild varðandi hús og önnur mannvirki vegna tunnuverksmiðjanna. Það er sú eina brtt. á þskj. 476, sem samkomulag er um í nefndinni.