15.04.1946
Neðri deild: 110. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 696 í B-deild Alþingistíðinda. (748)

115. mál, tunnusmíði

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Þetta frv. var upphaflega borið fram hér í Nd., en hefur nú einnig fengið afgreiðslu Ed., sem hefur gert breyt. á 5. gr. þess. Þegar frv. var hér til meðferðar, voru samþ. 3 brtt. við það frá minni hl. fjhn., og ein breyt. um stjórnarfyrirkomulag verksmiðjanna, á þá leið, að síldarútvegsn. skyldi annast stjórn og rekstur verksmiðjanna og ráða starfsmenn þeirra. Nú hefur hv. Ed. breytt þessu í það horf, að atvmrh. skuli skipa þriggja manna stjórn fyrir verksmiðjurnar. Ég fæ ekki séð, að ástæða sé til þess að hafa þannig sérstaka stjórn fyrir þessar verksmiðjur, og tel víst, að hv. dm. séu á sama máli og fyrir skömmu um það, að þetta muni ekki vera umfangsmeira en svo, að síldarútvegsn. geti vel annazt þetta. Ég vil því leyfa mér að bera fram skriflega brtt. við 5. gr. frv., um það, að síldarútvegsn. annist stjórn og rekstur verksmiðjanna og ráði starfsmenn þeirra, og verði frv. þannig fært í sama búning og það var í, þegar það fór til Ed. — Ég sé ekki ástæðu til að endurtaka þau rök, sem ég áður færði fyrir því, að eðlilegt sé að haga stjórn verksmiðjanna á þennan veg, en vil leyfa mér að afhenda hæstv. forseta þessa skrifi. brtt. með ósk um, að hún verði tekin til meðferðar.