15.02.1946
Neðri deild: 68. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 703 í B-deild Alþingistíðinda. (757)
168. mál, gistihúsbygging í Reykjavík
Samgmrh. (Emil Jónsson) :
Aðeins örfá orð viðvíkjandi því, að hv. 10. landsk. minntist á hótelbyggingar úti um land. Ég hef ekki viljað halda því fram, að hótelvandræðin úti um land leystust fyrir þetta. En ég vil benda á, að til bráðabirgða eru hótelbyggingar úti um land styrktar af sérleyfishöfum á bifreiðaleiðum út um land.
Um eignarnámið og geirneglingu þjóðfélagsins vil ég ekkert ræða. Ég vil bara segja það, að þótt það sé engin trygging, að frv. brjóti ekki í bága við stjórnarskrána, þótt það sé samið af skrifstofustjóra, þá er það líklegt, fyrst slíkur maður hefur fjallað um lögfræðilega hlið málsins. Og ég álít, að það brjóti ekki í bága við stjórnarskrána.