05.03.1946
Neðri deild: 80. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 704 í B-deild Alþingistíðinda. (760)

168. mál, gistihúsbygging í Reykjavík

Frsm (Gunnar Thoroddsen) :

Herra forseti. Allshn. hefur athugað þetta frv. og hefur orðið á eitt sátt um að mæla með því. Hins vegar finnst n., að í 5. gr. frv. felist of víðtæk eignarnámsheimild. Leggur meiri hl. hennar til, að sú grein verði niður felld.