05.03.1946
Neðri deild: 80. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 707 í B-deild Alþingistíðinda. (764)

168. mál, gistihúsbygging í Reykjavík

Eysteinn Jónsson:

Hæstv. ráðh. sagði, að Reykjavík hefði algera sérstöðu, og skilst mér, að hann eigi þar við þörfina fyrir gistihús. Ég mæli því ekki gegn og held, að hæstv. ráðh. liti rétt á það mál. En hann segir, að það verði erfiðleikum bundið fyrir aðra en hið opinbera að koma byggingunni upp. Ég held þó hinu þveröfuga fram. Rétt er, að nauðsyn er mikil, að hótelið verði reist, og viðurkenni ég það. En ekki er sú þörfin mest, að ríkið styrki það hús, þar eð hér í Reykjavík er mest fjármagn saman komið. Víða annars staðar er mikil þörf fyrir gistihús, en þar er minna fjármagn til að svara kröfunum. Þetta er mikilvægt atriði. Ég sagði, að einnig yrði að gera hið sama, reisa hótel annars staðar.

Hæstv. ráðh. sagði, að gistihúsið yrði undirstaða nýs atvinnuvegar af ferðamannastrauminum hingað til lands. Hann verður að athuga, að ferðamenn munu einmitt leita frekast út um land, og þá verður að hafa þar hótel, þ. e. a. s. annars staðar en í Rvík. því að þar verða ferðamennirnir ekki flestir. Þetta verður hæstv. ráðh. að taka til greina.

Kem ég þá að aðalatriði málsins, sem hæstv. ráðh. minntist á. Mér skilst, að það sé ekki þjóðnýtingarþörfin, sem fyrir honum hefur vakað, heldur að þessi bygging kostaði svo mikið, að ekki fengjust neinir til að reisa hana, og yrði ríkið því að koma hér til skjalanna, ef bygging hótelsins ætti að komast af stað og það sjálft á stofn. Hæstv. ráðh. getur ekkert fullyrt um þetta. Ég er sannfærður um, og þarf enginn að segja mér annað en það, að bæjarstj. Rvíkur, Eimskipafélagið og einstakir ríkismenn hefðu innan skamms komið svipuðu hóteli á fót allt að einu. Það hefði ekki gert til, þótt ríkissjóður hefði látið undir höfuð leggjast að veita fé í þessu skyni. Mér er og ekki kunnugt um, að erlendis þurfi að styrkja gistihúsarekstur af ríkinu. En verið getur, að mennirnir hafi hikað. Ríkisstj. var of fljót á sér að heita fénu.

Ég held því, að þetta sé bara bábilja, sem menn hafa e. t. v. fundið upp, þegar ríkisstj. var búin að ákveða þetta, hafa skotið henni fram eftir á.

Ég veit yfirleitt ekki, hvaðan hæstv. ráðh. kemur vitneskja sín. Ég veit ekki til þess, að orðið hafi að reka gistihús í útlöndum með milljónaframlagi úr ríkissjóði. Ég tel, að gistihúsið hefði komizt upp, þótt ríkið hefði eigi hafizt handa í málinu.

Ég sé ekki mikla ástæðu til að svara hv. 2. landsk., enda kemur það, sem hann sagði, lítið málinu við, svo sem tal hans um kotungssjónarmið, svartsýni o. fl., er lítið erindi á inn í umræðurnar. En í þessu sambandi vil ég nú aðeins benda á, að mér þykir furðulegt, ef hæstv. samgmrh. trúir því í alvöru, að það sé hægt á næstu missirum að koma í framkvæmd þeim áformum, sem fyrir liggja, þótt ekki sé talað um annað en það, sem liggur hér fyrir þinginu í frumvörpum og þáltill., því að jafnvel hvað sem fjármagni til þess líður, er alls ekki, til vinnuafl til þess að koma slíkum fyrirætlunum öllum í framkvæmd. Og reyndar er ekki fjármagn til þess heldur fyrir hendi. Og þó að ég nefndi 200 millj. kr. í lántökuheimildum, þá skiptir það fleiri hundruðum millj. kr., sem er talað um sem lántökur ríkissjóðs beinlínis og þegar einnig er talað um till. um heimildir fyrir ábyrgð ríkisins á lántökum. Það er því þannig, að við verðum að velja og hafna í því efni, hvað ríkissjóður á að gera af því og hvað ekki, því að ekki getur ríkissjóður orðið við því öllu, sem till. eru komnar fram um. Og ég segi það hiklaust, að mér sýnist það vera ýmislegt annað en þetta gistihús, sem brýnni nauðsyn væri á að leggja fram fé til úr ríkissjóði. Því að ég trúi því fastlega, að það muni koma myndarlegt gistihús upp hér í Reykjavík eða annars staðar, þó að ríkið leggi ekki fram neina styrki í því sambandi.

Hæstv. samgmrh. sagði áðan, að það þýddi lítið að tala um nýbýli og þess háttar í þessu sambandi, því að það þýddi ekki að vísa erlendum gestum á það, að þeir gætu farið á eitthvert nýbýlið og fengið gistingu. Þetta er vægast sagt hræðilegur útúrsnúningur. Það mætti þá einnig segja hæstv. samgmrh., að ef um annað tveggja væri að velja, annars vegar að byggja veglegt gistihús og hins vegar að byggja íbúðir fyrir það fólk, sem nú býr í bröggum, kjöllurum og öðrum grenjum, — ef velja ætti um það, hvort taka ætti vinnuaflið annars vegar til þess að bæta úr húsnæðisskorti þessa fólks og hins vegar þess að byggja gistihús, þá er ég sannfærður um það, að það byggingarefni, sem til er í landinu og flyzt hingað, og það vinnuafl, sem til er í landinu, er ekki meira en það hvort fyrir sig, að það verður að velja á milli þess að byggja íbúðir fyrir þá, sem nú búa í þessum grenjum, annars vegar og byggingu gistihúss hins vegar. Og fyrst hæstv. ráðh. vill ræða málið á þessum grundvelli, get ég þá alveg eins sagt við hann og framfaramanninn úr Vestmannaeyjum (ÞB), að það verður ekki hægt að vísa því fólki, sem býr nú í bröggum og kjöllurum, — það verður ekki hægt að vísa þessu fólki á, að það geti tekið sér á leigu herbergi í gistihúsi eins og því, sem hér er talað um að reisa. Ég segi þetta bara af því, að hæstv. samgmrh. þóttist vera fyndinn, þegar hann sagði, að ekki væri hægt að vísa erlendum gestum á eitthvert nýbýli uppi í sveit til þess að fá gistingu. Það er endalaust hægt að munnhöggvast svona, en það hefur litla þýðingu. Ég segi þetta aðeins til þess að sýna, hvað hægt er að tína til, ef á að ræða málið á þeim grundvelli, sem hv. þm. sumir hafa haft tilhneigingu til.

Nei, aðalatriðið í þessu máli er, hvort ástæða er fyrir ríkið að leggja fram í þessu sambandi stóra fjárfúlgu eða ekki. Ég álít, að það eigi að reyna til hlítar hina leiðina, hvort einstaklingar, Eimskipafélag Íslands og bæjaryfirvöldin hér í Reykjavík vilja standa að slíkri framkvæmd; áður en ríkið leggur fram mikið fé til þessa. Og ég trúi því ekki, fyrr en ég sé það, að ekki sé hægt að reka slíka hótelstarfsemi, nema hún sé styrkt af ríkisfé. Og ég efast um það, að það sé nokkuð upplýst í þá átt. Ég held þess vegna, að það sé óskynsamlegt að setja þessa löggjöf, og ég held, að það sé óþarflega lítil forsjá í því að vera að fleygja þessu fé fram nú í þessu skyni. Það hefði gjarnan mátt reyna meira á þolrif þeirra, sem þetta mál stendur að öllu leyti nær, bæði til þess að ríkið gangi ekki inn á braut, sem e. t. v. verður erfitt fyrir það að stöðva sig á, og líka vegna þess, í hve mörg horn ríkissjóður hefur að líta á næstunni. Og það getur vel farið svo, að þessum djarfmæltu framfaramönnum, sem hér hafa talað fyrir þessu máli, þyki nóg um, hve margt þeir verða að leggja til hliðar af því, sem þeir vilja koma í framkvæmd. Því að það er ekki ótakmarkað, sem þessar fáu hendur, sem hér eru á okkar landi, þar sem er vinnuaflið í landinu, geta komið í framkvæmd. Og við verðum því að velja úr verkefnunum.