07.03.1946
Neðri deild: 82. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 712 í B-deild Alþingistíðinda. (769)

168. mál, gistihúsbygging í Reykjavík

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti. Ég hafði tekið fram þau atriði, sem mestu máli skipta, og mun ekki endurtaka það. Það var aðeins út af því, sem hv. 3. þm. Reykv. sagði, að ég kvaddi mér hljóðs, og til þess að segja örfá orð út af því, sem hæstv. samgmrh. tók fram.

Hv. 3. þm. Reykv. segist í raun og veru vera sammála þeim sjónarmiðum, að það væri æskilegt, að einstaklingar og félög, m. ö. o. aðrir aðilar en ríkið, settu á fót gistihús. En hann færði fram nokkrar ástæður fyrir því, að hann teldi þetta ekki fært, eins og allt er nú í pottinn búið. Þessar ástæður, sem hv. 3. þm. Reykv. taldi fram, voru allt annars eðlis en þær, sem hæstv. samgmrh. hefur minnzt á, og var auðheyrt, að hv. 3. þm. Reykv. talaði frá öðru sjónarmiði, sem sé, að þeir aðilar, sem hann taldi eðlilegt að reistu gistihús og gjarnan mundu vilja leggja fram fé í gistihúsbyggingu og rekstur þess, treystu sér ekki til þess, nema ríkið væri með í verki, vegna þess að hætt væri við því, að rekstri hótelsins mundi verða íþyngt á allan hátt, ef ríkið væri ekki með í verki sem þátttakandi. Og hann minntist í þessu sambandi á verðlagseftirlitið, sem væri oft og tíðum strangt, og sagði sá hv. þm., að hann gerði ráð fyrir, að meiri linkind mundi verða sýnd gagnvart verðlagi, ef ríkissjóður ætti þar hagsmuna að gæta. Enn fremur minntist hann í því sambandi á áfengissölu, og mér skildist, að hann teldi, að litlar vonir væru til þess, að slíkt hótel fengi að selja áfengi, nema ríkissjóður ætti þar hagsmuna að gæta. Þetta er að vissu leyti nýstárlegt sjónarmið, þannig að ef þessi hugmynd ætti að vera ráðandi, þá mundu tímar þess, að hægt væri að reka nokkur meiri háttar fyrirtæki án þess að ríkið væri með í rekstrinum, vera úr sögunni. Ég held, að þessu sé ekki þannig farið, að þannig sé komið málum, og að það sé a. m. k. mjög varhugavert fyrir talsmenn einkarekstrarins og félagsrekstrarins að leggja upp laupana svo gersamlega, eins og málin nú standa, að þeir færi fram slíkar ástæður fyrir þátttöku ríkisins í þessu efni. Mér finnst slíkt of mikil svartsýni og ekki nægileg ástæða fyrir því, að ríkið leggi fram fé í þetta. Ef þessi starfsemi verður álitin heppileg, get ég ekki ímyndað mér, að það yrði þá farið að íþyngja henni svo með verðlagseftirliti, að ekki væri við unandi. Það væri a. m. k. fávísleg pólitík, ef fyrirtækið á annað borð væri talið nauðsynlegt. Enn fremur dettur mér tæpast í hug, að það geti haldið áfram til lengdar, að mikil greiðasala fái ekki að veita áfengi, ef áfengi má veita á annað borð í landinu. Það er frá mínu sjónarmiði hneykslanlegt að hafa ótakmarkaðar vínveitingar á einum einasta stað í borg eins og Reykjavík, þannig að þeir, sem vilja neyta áfengis, verði að safnast saman á einn lítinn blett á hverju kvöldi til þess að koma sínum vilja fram í því efni. Annaðhvort finnst mér, að það eigi að hafa þröng takmörk fyrir því eða jafnvel hætta því, að menn geti fengið keypt vín í gistihúsum, eða hins vegar að hafa frjálsari reglur um það, að menn geti fengið víðar en á einum stað í Reykjavík á veitingahúsi þennan drykk.

Mér dettur alls ekki í hug, ef Eimskipafélag Íslands vildi t. d. koma upp gistihúsi, að það væri stætt á því að neita slíku gistihúsi um að hafa vínveitingaleyfi, ef vín á annað borð væri veitt í landinu. Ef sú stefna væri ráðandi, þá þýddi það nokkurn veginn það sama sem bann við því, að slíkt nýtízkuhótel kæmist á fót, sem hér er talað um. Því að það mundi vera ómögulegt fyrir slíkt hótel að laða að sér erlenda gesti og veita þeim þjónustu í landi, þar sem áfengissala væri á annað borð leyfð, ef því væri ekki leyft að hafa vínveitingar. Ég geri þess vegna miklu minna úr þessu atriði en hv. 3. þm. Reykv. Og í mínum augum er það, sem hann sagði, alls ekki nógu sterk rök fyrir því, að ríkið eigi að leggja svo mikla fjármuni fram til gistihúsbyggingar sem hér í frv. þessu er gert ráð fyrir. Ef menn meina nokkuð með þessu tali um það, að nauðsynlegt sé að fá hér upp gott hótel, þá á auðvitað að skapa þannig skilyrði, að það sé ekki að því þrengt, svo að menn treysti sér til að leggja fram fjármuni sína í það. Og það er sú leið, sem á að fara, frá sjónarmiði þeirra, sem vilja ekki, að ríkið annist reksturinn, að yfirleitt ætti að reyna að tryggja hótelrekstrinum sæmileg skilyrði, fremur en að kasta sér út í það að óska eftir, að ríkið leggi fram mikið fé í þessu skyni.

Þegar hæstv. samgmrh. svaraði þeirri röksemd minni, að ég sæi ekki, að gott hótel ætti að þurfa styrks við, og vísaði þar til þess, að mér skildist, sem annars staðar ætti sér stað, að hótelrekstur væri sæmilega arðvænlegur rekstur, þá sagði hann, að hér gæti verið ástæða til þess að tryggja slíka starfsemi með öflugu framlagi frá ríkinu, þótt ekki væri ástæða til þess annars staðar í löndum. En mér hefur skilizt, að hér séu góð skilyrði til þess, að heppilega byggt gistihús gæti borið sig, og er þá þess að gæta, að hér er stórkostleg vöntun á slíkri þjónustu. Það er stórkostleg vöntun á gistihúsi í Reykjavík og ættu að vera góðir möguleikar á að reka hér fleiri gistihús þegar, í sambandi við erlenda ferðamenn. Og þess ber einnig að gæta gagnvart straumi erlendra ferðamanna til landsins, að það er áreiðanlega hægt að hafa mjög hagkvæm viðskipti við þá. Ég get ekki betur séð en að óvíða mundi vera álitlegra en hér í Reykjavík, eins og nú standa sakir, að byggja hagkvæmt gistihús. Mér sýnist því ekki vera þörf fyrir þessi háu fjárframlög frá ríkissjóði, sem ráð er fyrir gert í frv. Mér virðist, að hæstv. ríkisstj. muni hafa nóg með fjármagn ríkissjóðs að gera, þó að horfið væri frá þessu ráði. Ég hef því ákveðið að bera fram svo hljóðandi rökst. dagskrá :

„Í fullu trausti þess, að í Reykjavík og víðar verði byggð fullkomin gistihús, án þess að ríkissjóður leggi fram fé til þeirra, ályktar deildin að vísa þessu frv. frá og taka fyrir næsta mál á dagskrá.“

Vil ég svo afhenda hæstv. forseta þessa dagskrártill.