07.03.1946
Neðri deild: 82. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 724 í B-deild Alþingistíðinda. (777)

168. mál, gistihúsbygging í Reykjavík

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Ég þakka hæstv. félmrh. fyrir svarið. Það hélt ég, að hæstv. ráðh. mundi vel vita um þetta. Því spurði ég. Ég gerði ráð fyrir, að hann mundi athuga málið frá öllum hliðum. Hér situr nú formaður nýbyggingarráðs, sem ekki var við, þegar ég spurði. Það ætti að vera búið að gera þá áætlun, er ég spurði eftir um innflutning byggingarefnis, og vonandi svarar hann þá nú. En nú upplýsir hæstv. félmrh. annað : „Þetta er bara heimild,“ segir hann. Til þess að skyggja eigi á hæstv. forsrh. fór svo hæstv. ráðh. að gera ráð fyrir, að fólksekla kæmi til, svo að ekki yrði hægt vegna hennar að byggja hótelið. Þá væri ekki um annað að ræða en fresta öllu og gera þetta einhvern tíma seinna. Aftur segir hæstv. dómsmrh., að það hljóti að verða að byggja. Hæstv. fjmrh. hefur upplýst, að ekki fáist byggingarefni eða nóg fólk til þess að byggja fyrir það fé, er veitt hefur verið í fjárl. til hótelsins. Síðan segir hæstv. félmrh., að það verði bara að fresta málinu vegna þess, að efni vanti. Hæstv. forsrh. sagði, að ekki mundi fást fólk á einn togara í viðbót. Er því sýnt, að allt ber að sama brunni með þetta frv. Það er ekkert meint með því, enda ekkert nema látalæti, og mun ég því ekki styðja stj. í þessum skrípaleik.