05.04.1946
Neðri deild: 103. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2153 í B-deild Alþingistíðinda. (78)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o. fl.
Eysteinn Jónsson:
Ég vildi standa upp til að lýsa þeirri skoðun minni, að ekki er hægt að hefja rekstur svo stórra fyrirtækja sem flugvallanna á vegum ríkisins, öðruvísi en sett sé um það sérstök löggjöf eða ákvæði á Alþingi. Það eru til lög um flugvelli og flugmál, en þessi lög eru ekki ætluð til að vera fyrirmæli um rekstur stórra flugvalla. Og ég vil skora á hæstv. ráðh. að leggja fyrir þetta þing frv. um þetta efni.
Út af því, sem hv. 4. þm. Reykv. spurði um, þá vil ég nota tækifærið til að segja það, að mér finnst rangt að láta flugmálastjóra hafa heimild til að gera samninga við erlend félög um not af flugvöllunum. Ég tel ekki heimilt, að flugmálastjóri vasist í slíku, heldur eigi ríkisstj. og Alþingi að ráða um þetta.
Ég vil svo enn undirstrika, að ég tel ekki rétt að farið í þessum efnum, og ég tel ekki heimilt fyrir ríkisstj. að gefa þessi leyfi nema í samráði við Alþingi. Þegar samningurinn var gerður við Ameríku, þá var hann staðfestur á Alþingi.