13.03.1946
Neðri deild: 86. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 741 í B-deild Alþingistíðinda. (808)

168. mál, gistihúsbygging í Reykjavík

Eysteinn Jónsson:

Ég benti á það við 1. umr. þessa máls, að mér sýndist ekki hyggilegt né nauðsyn að leggja fram svo mikla fjárfúlgu, eins og ætlazt er til, þar sem ríkið hefði í nógu mörg önnur horn að líta hvað snertir fjárgreiðslur þess, — jafnvel þótt þetta sé kannske freistandi til að fá fjármagn frá öðrum til að reisa gistihúsið. Ég benti einnig á það, að ef ríkið legði inn á þessa braut, þá væri ekki vitað nema aðrir kæmu á eftir og vildu fá fé til gistihúsbyggingar þar, sem þörfin væri meiri, og er það vissulega víða. — Ég gat þess líka, að hvergi væri meira fé í höndum einstaklinga en hér í Reykjavík. Hæstv. samgmrh. vildi lítið taka undir þessi orð mín. En nú hefur það komið á daginn, að hæstv. atvmrh. hefur tekið í sama streng og ég, og þykir mér það vitanlega styrkja minn málstað. Þess vegna vil ég taka það fram, að ef farið verður með mál þetta eins og samgmrh, vill, þá yrði lagt í þetta gistihús fé, sem ríkið gæti vel komizt hjá, því að það virðist nú nokkurn veginn ljóst, að gistihús verður reist, þótt ríkið leggi ekki fram fé. Við vitum, að hér í Rvík eru margir aðilar, sem gjarnan vilja taka þátt í gistihúsbyggingu. Þar má t. d. nefna Eimskipafélagið, Reykjavíkurbæ og loks fjársterka einstaklinga. En nú er hafinn ákafur áróður fyrir því að koma ríkinu sem aðila inn í þennan félagsskap með því að láta það leggja fram nokkrar milljónir. Ég tel ekki rétt, að farið sé út á þessa braut, en ef menn vilja endilega, að ríkið liggi fé í gistihús, þá væri meira vit í að hafa það þannig almennt, að fé yrði lagt í gistihús þar, sem þörfin er mest, en fjármagn lítið. Mér þætti því líklegt, að það mætti færa þetta mál inn á skynsamlegri brautir, og vil mælast til þess við hæstv. forseta, hvort hann sæi sér ekki fært að fresta umr., ef vera mætti, að samkomulag næðist um einhverjar brtt. Það er ekki svo þægilegt að útbúa brtt. skriflega í hasti, en eftir því sem fleiri raddir hafa komið fram, virðist mér, að málið þurfi enn gaumgæfilegri athugun. Málið er þannig vaxið, að full ástæða er til að breyta því, og ég vona, að hæstv. samgmrh. geti sætt sig við það, að málið komist í það horf, að það stuðli sem mest að byggingu gistihúsa í landinu, enda veit ég, að það er fyrst og fremst tilgangur hæstv. samgmrh.