13.03.1946
Neðri deild: 86. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 742 í B-deild Alþingistíðinda. (810)

168. mál, gistihúsbygging í Reykjavík

Frsm. (Gunnar Thoroddsen) :

Ég sé ekki ástæðu til að hafa hér langt mál, en ég taldi það skyldu mína að standa upp, þar sem mér virtist kenna nokkurs misskilnings í ræðu hv. 10. landsk., og vera má, að það gæti gefið fleirum tilefni til misskilnings. Það virðist gæta misskilnings um afstöðu allshn. Í till. segir, að ríkisstj. sé heimilt að taka eignarnámi krika þann, sem takmarkast af tjörninni, Tjarnargötu og Skothúsvegi. Í till. er eingöngu miðað við þetta landsvæði. Þegar svo hv. 10. landsk. er að segja, að stjórnin geti tekið eignarnámi landsvæði koll af kolli, eftir því sem hún vill færi til gistihúsið, þá er hv. þm. algerlega að tala út í hött. Stjórninni er ekki heimilt að taka neitt annað landsvæði eignarnámi en það, sem um ræðir í till. Mér finnst því, að hv. þm, ætti miklu fremur að vera n. þakklátur en vanþakklátur. Einnig er það fleipur eitt hjá hv. þm., að n. hafi gefið yfirlýsingar um eignarnám, sem varði fleiri þing en þetta, og allt þetta sé einsdæmi í þingsögunni. Yfirlýsingin um eignarnámið er aðeins miðuð við þetta þing, enda er nú von á hinum útlenda sérfræðingi um næstu mánaðamót, og er því allt útlit fyrir, að hinn væntanlegi staður undir gistihúsið verði valinn fyrir þinglok. Ef annar staður þykir heppilegri, þá mun n. taka það til athugunar. En að segja, að n. hafi gefið einhver loforð um eignarnám, er fjarstæða ein.

Ég tel ástæðu til, að þetta liggi skýrt fyrir, en auk þess verð ég að geta þess í sambandi við eignarnámsheimildina, að mér þótti einkennileg afstaða hv. 8. þm. Reykv. En hann sagði, að Rvíkurbær mætti ekki missa þetta land vegna barnaheimilis o. fl., en samt vill hann láta ríkisstj. fá ótakmarkaða eignarnámsheimild. Mér er óskiljanleg þessi afstaða.

Að lokum vil ég taka þetta fram: Mér finnst, að sumir hv. ræðumenn tali þannig um þetta mál, eins og veita eigi ríkisstj. eins konar einokun á að reisa gistihús. En einstaklingum og félögum er engu að síður frjálst og heimilt að reisa gistihús eða ganga inn í þennan félagsskap um gistihúsabyggingu. Ég skal enn fremur taka það fram, að í greinargerð frumv. segir ekki, að ríkisrekstur eigi að vera á gistihúsinu. (GSv: Annað segir nú í 3. gr. frv.) Í 3. gr. segir aðeins, að gistihúsið megi reka fyrir reikning ríkissjóðs eða í félagi við þá aðila, sem verða þátttakendur í því að reisa gistihúsið, og leigja megi húsið út til gistihúshalds. — Þeir aðilar, sem hyggja á gistihúsabyggingu, gera það ekki aðeins vegna brýnnar þarfar vegna útlendra ferðamanna og annarra útlendinga, heldur jafnvel enn meira vegna landsmanna sjálfra.

Hv. 10. landsk. sagði, að sér fyndist undarlegt, hvers ríkisstj. legði mikið kapp á þetta mál. Ég verð þó að segja, að mig undrar það enn meir, hversu rík áherzla er lögð á að ónýta þetta mál.