13.03.1946
Neðri deild: 86. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 746 í B-deild Alþingistíðinda. (815)
168. mál, gistihúsbygging í Reykjavík
Eysteinn Jónsson:
Mér virðast allundarleg ummæli hæstv. ráðh. um, að ég sé með ofurkapp í þessu máli, þar sem ég mun ekki hafa eytt nema 1/10 af umræðutíma þessa máls. Enn fremur vil ég frábiðja mér allar dylgjur um, að ég sé á móti þessu máli af annarlegum ástæðum.
Ég tel það fásinnu að byggja gistihús fyrir fleiri milljónir króna til þess eins að berast á. Ég álít, að byggja hefði átt haganlegt og hreinlegt gistihús, en ekki neina höll. Og ég er ekki sammála hæstv. ráðh. um, að ekki þurfi að gera svipaðar kröfur um gistihús annars staðar á landinu. Það má vera, að hér í Reykjavík þurfi stærri salarkynni en á öðrum stöðum, en reynslan hefur verið sú, að slík salarkynni hafa gefið mikið í aðra hönd hér í Reykjavík. Þar sem hæstv. forseti hefur lýst yfir því, að umr, um málið verði frestað, mun ég ekki leggja fram þær skriflegu brtt., sem ég hafði hugsað mér að koma með.