09.04.1946
Neðri deild: 105. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2154 í B-deild Alþingistíðinda. (82)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o. fl.
Sigurður Bjarnason:
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir svörin. Það er fullkomið áhyggjuefni, hvernig þessum málum er komið, og er einkennilegt, hvernig þetta hefur til gengið. Öll afgreiðsla á þessum skipum er orðin afar einkennileg og raunar lítt afsakanleg, og væri ástæða til þess að ýtarleg rannsókn færi fram á því, hvernig á slíkum hlut standi.
Ég vil svo ekki fjölyrða um þetta meira á þessu stigi málsins, en treysti því, að hæstv. ráðh. og stjórnin öll muni gera allt, sem hægt er, til þess að bjarga þessu. Seinkun eins og sú, er hér um ræðir, á afgreiðslu skipanna ylli miklu tjóni, og ekki sízt, þegar tillit er tekið til þess, að kaupin voru ekki hagstæð.