13.04.1946
Efri deild: 106. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 766 í B-deild Alþingistíðinda. (855)
168. mál, gistihúsbygging í Reykjavík
Samgmrh. (Emil Jónsson) :
Ég skal ekki tefja umr., en vil aðeins svara fyrirspurn, sem til mín hefur verið beint frá hv. 1. þm. Eyf. um það, hvort í sambandi við þetta hótel eigi að athuga um þingmannabústað. Svo hefur ekki verið. En það stendur opið fyrir að athuga þetta. Og ekki skal ég fyrir mitt leyti standa á móti því, að sú athugun fari fram.
Hv. þm. Barð. spurðist fyrir um það, hvernig mér litist á brtt. hans, sem mér skilst vera á þá leið að fella niður 4. gr. frv. Um þetta vil ég aðeins segja það, að gert hefur verið ráð fyrir þeim möguleika, að þessir 3 aðilar, sem nefndir hafa verið ásamt tveim öðrum, mynduðu hlutafélag um byggingu og rekstur þessa hótels. En það er aðeins möguleiki, en ekkert um það sagt, hvort möguleikinn verður notaður eða þetta félagsform. Ef formið verður notað, verður að fá undanþágu, því að annars skilst mér, eftir því sem lögfræðingar segja, að ríkissjóður geti ekki orðið aðili að stofnun félagsins og ekki heldur bæjarsjóður Reykjavíkur, því að það verða að vera persónur. Því verður undanþága að vera. Svo getur það orkað tvímælis, hvort nema eigi úr gildi takmörkun á atkvæðisrétti. En venjulega í hlutafélögum er takmörkunin miðuð við 1/5. Það er sett svona fram, vegna þess að annars hefði bæjarstjórn og bæjarráð Reykjavíkur verið andvígt því að taka þetta til athugunar. Ef horfið yrði að því að hafa hlutafélagsformið, segja hinir fróðu menn, sem l. þekkja, að nauðsynlegt sé að hafa undanþáguákvæði um stofnendur.