15.04.1946
Efri deild: 107. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 767 í B-deild Alþingistíðinda. (859)

168. mál, gistihúsbygging í Reykjavík

Gísli Jónsson:

Ég skal ekki hefja umræður um þetta mál, því að ég hef áður gert grein fyrir afstöðu minni til þess. Brtt. þær, sem ég flyt á þskj. 812, eru í samræmi við það, sem ég hef áður haldið fram, og tel ég mig því ekki þurfa að skýra þær frekar, en vænti, að hv. deild geti fallizt á þær.