29.11.1945
Neðri deild: 42. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2155 í B-deild Alþingistíðinda. (86)
Afgreiðsla mála úr nefndum o. fl.
Sigurður Kristjánsson:
Herra forseti. Ég hef náttúrlega ekki neinu verulegu við að bæta það, sem ég sagði áðan. Það er sjálfsagt, að n. verður að láta þessi mál fá afgreiðslu. En ég vil geta þess, án þess að það sé umkvörtun, að það er hlaðið svo miklum störfum á suma sjávarútvegsnefndarmenn, að það hefur gengið stórkostlega illa að fá þá saman til starfa í n., og í dag mætti aðeins einn maður á fundi í n., og ég veit, að hinum nefndarmönnunum var ætlað af þinginu annað verk á sama tíma og þannig fleira en eitt verk í einu. En viðkomandi frv. um fiskimálan. er það að segja, að það er kannske ekki eins auðhlaupið að afgreiðslu þess og hv. þm. Borgf. heldur, því að þetta mál var hjá milliþn. í sjávarútvegsmálum í næstum tvö ár, og það var mikill ágreiningur um málið, og við erum í mjög miklum vanda staddir um lausn þess. Og í sjútvn. eru einmitt þrír sömu menn og voru í milliþn. í sjávarútvegsmálum.