15.04.1946
Efri deild: 107. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 767 í B-deild Alþingistíðinda. (860)

168. mál, gistihúsbygging í Reykjavík

Bjarni Benediktsson:

Ég vil mæla með síðari brtt., því að hún getur ekki skaðað málið, en hins vegar er gott að takmarka eignarnámsheimildina. — Fyrri brtt. aftur á móti verður erfitt að samþ., þar sem hún felur í sér, að reglur úr hlutafélagalögum um stofnendur og atkvæðamagn eigi að gilda, og get ég eigi fallizt á hana.