16.04.1946
Neðri deild: 112. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 770 í B-deild Alþingistíðinda. (876)

168. mál, gistihúsbygging í Reykjavík

Frsm. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir um byggingu gistihúss í Reykjavík, hefur tekið nokkrum breyt. í hv. Ed. Eins og hv. þm. mun reka minni til, urðu nokkrar deilur hér í hv. Nd. um 5. gr. frv. Meiri hl. allshn. taldi eignarnámsheimildina, eins og hún var í frv. upphaflega, of víðtæka, þar sem ráðh. eða ríkisstjórn var heimilað að taka eignarnámi hvaða hús, lóðir og mannvirki, sem hún teldi þurfa, undir gistihúsið og því til afnota. Við meðferð málsins varð samkomulag um það á milli allshn. og hæstv. samgmrh. að breyta 5. gr. þannig að miða eignarnámsheimildina við ákveðnar eignir, enda væru þá undangengnar samningatilraunir. — Hv. Ed. hefur séð ástæðu til að breyta þessu aftur að meginefni til í það fyrra horf að hafa eignarnámsheimildina ótakmarkaða, en bæta því við, að öll ríkisstj. og allir, sem að gistihúsbyggingunni standa, skuli vera sammála um, að eignarnámið fari fram. Það er því ekki fyrir hendi lengur það samkomulag, sem varð á milli hæstv. ráðh. og allshn. þessarar d. Og allshn. heldur við fyrri afstöðu sína og flytur brtt., sem flutt er af meiri hl. n., eins og hið fyrra sinn, um að 5. gr. frv. falli burt. — Sé ég ekki ástæðu til, eins ýtarlega og málið hefur áður verið rætt, að hafa um þetta fleiri orð á þessu stigi.