16.04.1946
Neðri deild: 112. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 772 í B-deild Alþingistíðinda. (881)
168. mál, gistihúsbygging í Reykjavík
Samgmrh. (Emil Jónsson) :
Herra forseti. Hv. þm. Snæf. vildi halda fram, að takmarkanir þær, sem settar hafa verið inn í frv. í sambandi við eignarnámsheimildina, séu einskis virði. Þetta er mjög fjarri sanni. Því að ef þessi eignarnámsheimild er ekki notuð á þessum stutta tíma, sem þarna er til tekinn, fellur hún niður. En það væri allt annað, ef eignarnámsheimildin væri miðuð við ótakmarkaðan tíma, sem hv. þm. Snæf. hefur þó verið með í að setja ákvæði um. Hv. þm. Snæf. hefur haldið fram, að það séu hreinar undantekningar, að slíkar eignarnámsheimildir sem þessi væru settar í l. Og hann reyndi að halda því fram við fyrri umr. þessa máls hér í hv. þd., að þessar eignarnámsheimildir væru bara ekki til. En svo, þegar sýnt var fram á það, að það væri fjarri því, að þessar heimildir væru ekki fyrir hendi, þá kom það einnig í ljós, að þær eru nærri því eins margar og hafnarlögin. Og í hverjum slíkum hafnarl. er svo að segja ótakmörkuð eignarnámsheimild, og í vegal. sömuleiðis, og í fjöldamörgum öðrum l. eru heimildir svipaðs eðlis. Það er því langt frá því, að hér sé um hreina undantekningu að ræða. Og þetta er nánast nákvæmlega það sama og gert er í fjölda tilfellum, þegar líkt stendur á.
Hv. þm. Snæf. vildi halda fram, að það væri nauðsynlegt að setja þetta inn í vegal. og hafnarl. Það er nákvæmlega sama nauðsynin í þessu tilfelli. Það mætti alveg eins í sambandi við vegagerðir og hafnargerðir bíða eftir því að vita, hvaða mannvirki þurfi að ,taka eignarnámi, og koma svo til þingsins og segja: Nú þurfum við að taka þessar eignir eignarnámi, og við verðum að fá lög um það. — Og ef hv. þm. Snæf. vildi vera sjálfum sér samkvæmur, ætti hann auðvitað eins að taka þetta fyrir eins og viðvíkjandi þessu máli, sem hér liggur fyrir. Það er enginn eðlismunur á þeirri eignarnámsheimild, sem í þessu frv. er leitað eftir að fá, og venjulegum eignarnámsheimildum í hafnarl., önnur en sú, að þessi heimild er tímabundin og bundin við það, að öll ríkisstj. og allir aðilar, sem að þessari gistihúsbyggingu standa, séu sammála um eignarnámið. En slík ákvæði finnast vissulega ekki í neinum hafnarl. eða neinum vegal. — Því skyldi ekki mega byggja þetta hús án þessarar heimildar í l. þessum? segir hv. þm. Snæf. Nákvæmlega sömu spurningu má leggja fram viðkomandi hafnar- og vegal. Hvers vegna skyldi ekki mega byggja hafnir og vegi án slíkrar eignarnámsheimildar í hafnar- og vegal.? En það er vegna þess, að það þykja hagkvæm og skynsamleg vinnubrögð að hafa eignarnámsheimildir í þeim l., eins og gert er, og það þykir spara tíma, og hefur, mér vitanlega, slíkt aldrei komið að neinni sök. Ég sé því ekki, að um neinn eðlismun sé að ræða í þessu tvennu, nema það, að þessi eignarnámsheimild er miklu takmarkaðri, sem felst í þessu frv., en á sér stað í hliðstæðum l. um þetta.