16.04.1946
Neðri deild: 112. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 775 í B-deild Alþingistíðinda. (885)
168. mál, gistihúsbygging í Reykjavík
Garðar Þorsteinsson:
Herra forseti. Ég ætla ekki að lengja þessar umr. Ég vil aðeins gera grein fyrir minni afstöðu. Ég hef talað einu sinni í þessu máli, auk þess sem ég hef nokkuð rætt þetta mál í sambandi við annað mál, þegar hv. 10. landsk. þm. deildi nokkuð á mig fyrir það að hafa skipt um skoðun, sem ég sýndi fram á, að ég hef alls ekki gert í sambandi við þetta mál. — En eins og ég tók fram við 2. umr. málsins, lýsti ég yfir, að ég væri fylgjandi þessu frv., en gæti alls ekki gengið inn á það heimildarákvæði um eignarnám að hafa heimildina óákveðna, eins og lagt hefur verið til. Og þetta hefur verið stefna hæstv. Alþ., a. m. k. meiri hl. allshn. frá því ég hef átt þar fyrst sæti, eða síðan 1934. Hafa oft komið á þeim tíma mál inn í þessa hv. d. þessu svipuð að þessu leyti, og hef ég alltaf haft þessa afstöðu, að gefa ekki eignarnámsheimild, nema búið sé að þaulreyna samkomulag við aðila um kaup á viðkomandi eignum, og að miðað sé við tiltekna staði og eignir. Og þegar svo n. skilar till. sinni, var brtt., sem hún flutti um það, að fella niður ótakmarkaða eignarnámsheimild, svo að það væri í rauninni hægt að taka hvaða byggingu sem er í Reykjavík og rífa hana niður, meira að segja væri hægt að taka alþingishúsið og rífa það niður, og eins og frv. er nú orðið, er enginn staður nú í þessu umdæmi, sem ekki er í hættu. Eins og frv. var, þegar það kom, frá Nd., þá var gert ráð fyrir, að samkomulag væri reynt, en nú er það alls ekki svo. En svo þegar málinu var frestað hér í d., eftir beiðni hæstv. ráðh., þá orðaði hann sjálfur till., sem n. felldi sig við, um það að heimila eignarnám á ákveðnum lóðum og ákveðnum húseignum, til þess að byggja hótelið á. Jafnframt fékk hæstv. ráðh. yfirlýsingu um það, — af því tilefni, að ekki var vitað, hvort þessi staður mundi nægja, — frá allshn., að hún skyldi mæla með eignarnámi á öðrum stað, sem væri afmarkaður og tiltekinn, og hæstv. ráðh. tók fram, að hann mundi láta sér þessa yfirlýsingu nægja. En hæstv. ráðh. getur ekki búizt við því, að meiri hl. allshn., sem hefur ákveðna stefnu í þessu máli, geti tekið stefnu þvert ofan í sjálfan sig. Svo sagðist hæstv. ráðh. hafa fyrir framan sig mál, þar sem sams konar heimild væri. En hæstv. ráðh. hefur ekki haft í huga, hvernig þessi heimild er til orðin, hún er til orðin með bráðabirgðal., sem hæstv. atvmrh. fékk útgefin, það var ekki Alþ., sem um þau barðist. En hvað skeður svo, þegar þau l. koma inn í þingið? Þá upplýsist það, að málið liggur 5. vikur hjá allshn. Ed. og beðið er eftir því að fá skýringu frá ráðh, á því, hvers vegna hafi ekki verið reynt fullt samkomulag við þá, sem áttu að þola eignarnámið, og þegar svo málið kemur hingað til allshn. Nd., þá varð það, sem ég og hv. þm. Snæf. man, að hv. 1. þm. Árn. skrifaði undir nál. með fyrirvara og segir í fyrirvaranum um það, að hann telji, að slík löggjöf um eignarnám sé ekki í samræmi við áður yfirlýstan vilja meiri hl. allshn. eða Alþ. Svoleiðis að þetta dæmi, sem hæstv. ráðh. tekur, er ekki hliðstætt nema að. forminu til, vegna þess að viðkomandi ráðh. lét gefa út þessi l., en hafði að þessu leyti til haft stuðning nefndarinnar. Hitt, að allshn. ekki gerði till. um að fella frv., var vegna þess að það kom til framkvæmda áður en Alþ. kom saman. Ég vildi þess vegna spyrjast fyrir um það hjá hæstv. ráðh., hvort hann sæi ekki fært að láta sér nægja sams konar heimild og var í frv., þegar það fór til Ed., og aldrei skyldi hafa verið breytt þar.