16.04.1946
Neðri deild: 112. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 777 í B-deild Alþingistíðinda. (887)
168. mál, gistihúsbygging í Reykjavík
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Ég ætla ekki að blanda mér í þessar umr., en ég vildi þó geta þess, í tilefni af því, sem á mig hefur verið minnzt, að það er síður en svo, þó að ég hafi fallizt á það í sjútvn. að fella niður þá gr., sem hér er minnzt á í sambandi við frv. um síldarniðursuðuverksmiðju ríkisins, að ég hafi út af fyrir sig talið það nokkra nauðsyn vegna eignarnámsins, heldur vegna þess, að það gekk erfiðlega að fá málið fram á öðrum grundvelli. En mig langar í þessu sambandi að minnast á það, út af því, sem hér hefur fram komið hjá hv. þm. Snæf., að ég þekki l., sem ég býst við, að hann og margir fleiri kannist við, sem mér finnst að séu allmikið á annan veg en hann hefur: viljað vera láta í þessu efni. Það eru íþróttalögin. Þar er ákvæði, þar sem segir, að heimilt sé að taka eignarnámi lönd og lóðir eftir því, sem þurfa þykir til þess að reisa þar íþróttamannvirki. Og þessi íþróttamannvirki er ekki einasta íþróttavellir, heldur einnig íþróttahús, sundlaugar og annað þess háttar; 27. gr. þeirra l. er á þessa leið :
„Skylt er bæjar-, sveitar- og sýslufélögum að leggja til endurgjaldslaust hentug lönd og lóðir undir íþróttamannvirki, sem styrkt eru úr íþróttasjóði eða íþróttanefnd viðurkennir. Heimilt er að taka lönd til þessa eignarnámi, ef þörf krefur.“
Ég veit, að þetta eignarnám er ekki notað, en eigi þetta að koma að haldi, verður að nota það þannig. En það er ekki hægt fyrirfram að tilkynna á Alþ., hvaða lóð það er, sem kann að verða tekin eignarnámi til þess að koma upp íþróttamannvirkjum. Mín skoðun er sú, að afstaða sú, sem fram hefur komið hjá hv. þm. Snæf., sé falsafstaða. Hér er engin hætta á ferðum. Ég hef þá skoðun, að frambærilegt sé að hafa slíka eignarnámsheimild eins og þessa um slíkt hótel. En það er ekki um það, sem er að ræða, heldur þykir ýmsum hagkvæmt að slá þessu atriði fyrir sig, þó að í ýmsum öðrum tilfellum hafi hliðstætt ákvæði verið lögfest.