16.04.1946
Neðri deild: 112. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 782 í B-deild Alþingistíðinda. (897)
168. mál, gistihúsbygging í Reykjavík
Pétur Ottesen:
Ég vil út af þeim orðum, sem hér hafa verið látin falla um málið, láta þess getið við menn þá, er lögðu lið þeirri ráðabreytni að leggja stein í götu þess, að bændur gætu sjálfir reist sér gistiheimili, að frv. bætir ekkert úr því. Menn eru jafnt undir sökina seldir, hvort sem þeir eru með eða á móti. En vegna þess að málið er gott að minni hyggju og út af fyrir sig vert framgangs, þá segi ég já.