08.10.1945
Efri deild: 3. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 787 í B-deild Alþingistíðinda. (903)

9. mál, áhrif kjötverðs á framfærsluvísitölu

Hermann Jónasson:

Það er svo um þetta mál, að það er eitt af þeim málum, sem svo hefur verið hagað með setningu brbl. og framkvæmd þeirra, að útilokað er, þegar málið er komið á þetta stig, að hægt sé að breyta til frá því, sem orðið er, því að það mundi rugla svo alla verzlun í landinu með þessa vöru, að ekki væri við það hlítandi. Málið er þess vegna komið á þetta stig, að það er raunverulega ákveðið fyrir þetta ár með þeim brbl., sem hér liggja fyrir, og með öðrum l., sem ekki liggja hér fyrir, l. um það, hvernig landbúnaðarvörur eru verðlagðar í haust. Ég ætla að sjálfsögðu ekki að ræða það mál hér, því að það liggur ekki fyrir, og ég mun ekki heldur fara að blanda mér í deilu hæstv. fjmrh. og hv. 1. þm. Eyf., en ef hæstv. ráðh. þykir þetta sérstaklega gott úrræði og svo ánægjulegt sem hann heldur fram fyrir bændastéttina að skipa henni fulltrúa með þessum hætti, þá vil ég leyfa mér, vegna þess að hann hefur upplýst, að þessir samningar gangi erfiðlega, að spyrja hann, hvort hann vilji ekki skipa fulltrúa fyrir verkamenn á sama hátt, og kannske er það atriði, sem liggur fyrir á næstunni í hæstv. ríkisstj.

En það, sem ég vil sérstaklega segja um þetta mál á fyrsta stigi þess, er það, að þótt þessi hæstv. fjmrh. hafi sagt allt síðastliðið ár, að þessi leið væri ófær, þá er samt auðsætt, að hann ætlar að halda enn áfram á þessari leið, og það, sem liggur alveg sérstaklega fyrir í þessu máli nú og þeim upplýsingum, sem hæstv. fjmrh, gefur, er einmitt þetta, og ekki er getið þar annarra breytinga frá þeirri leið, sem farin hefur verið að undanförnu, en að niðurgreiðsla á mjólkinni verður nokkrum aurum minni á hvern lítra en verið hefur og um kjötið er það þannig, að það er á vissan hátt skammtað, því að það er ákveðin endurgreiðsla til neytenda á visst magn, sem þeir geta neytt með þessum hlunnindum, og í staðinn fyrir að greiða það niður við búðarborð eins og verið hefur, þá á að greiða það þremur mánuðum seinna. Í staðinn fyrir að menn hafa áður afhent peningana við búðarborð og menn fengu til baka niðurgreiðsluna úr ríkissjóði, þá borga menn nú fullt verð við búðarborð og fá niðurgreiðsluna þremur mánuðum seinna og ekki nema á tiltekið magn. Leiðin er því nákvæmlega sú sama, aðeins gerð tilraun til að spara ríkissjóði lítils háttar niðurborgun. Þetta finnst mér það merkilegasta, sem liggur fyrir í þessu máli, og ég sé ástæðu til að vekja athygli á því sérstaklega, að hæstv. ráðh. hefur nú gefið yfirlýsingu um, að leið, sem hann hefur áður talið ófæra, sé nú fær. En það getur tæplega verið, að þessi leið sé frekar fær en sú, sem farin var áður, vegna þess að breytingin er sú ein að spara ríkissjóði tiltölulega mjög litla upphæð, enda kom líka greinilega fram í ræðu hæstv. fjmrh., að svo er þessu háttað.

Undanfarnar vikur hefur talsvert verið um það rætt af blöðum hæstv. ríkisstj., að ekki yrði hjá því komizt að fara nýja leið í þessum málum, fjármál ríkisins gætu ekki lengur þolað það og ríkissj. fengi ekki staðizt undir þessu kerfi, sem ríkt hefði til þessa. Þess vegna áleit þjóðin, að nú væri komið að því, að þessi hæstv. ríkisstj. leysti þetta mál, sem henni væri einni treyst til af stuðningsmönnum hennar. Það kom greinilega fram bæði í Þjóðviljanum og Morgunblaðinu, að nú yrði ekki lengur komizt hjá að fara nýja leið í þessu máli. Sérstaklega var þetta áberandi í Morgunblaðinu, og var það þráfaldlega tekið fram þá daga, sem hæstv. fjmrh. upplýsti, að samningar hefðu staðið yfir um þetta mál, en nú upplýsir hann einmitt, að samningar hafi staðið yfir og samkomulag hafi ekki náðst um lausn málsins.

Út frá þessu er það bersýnilegt, að enn þá hjakkar í sama farið, því að enn þá er farin sú leið í dýrtíðarmálunum, sem engin lausn er og flestir landsmenn eru farnir að, sjá, að er ófær leið í þessum málum. (Fjmrh.: Bara að þeir hefðu séð það fyrr). Hæstv. ráðh. gæti frekar beint þeirri ósk til annarra en mín. Þess vegna hlýtur það að verða vonbrigði bæði fyrir stjórnarandstæðinga og stuðningsmenn hæstv. stj., sem nú situr og stuðningsmenn hennar hafa oft sagt um, að væri sú eina, sem fær væri um að leysa málið, að samningarnir skuli ekki hafa náð tilgangi sínum, eins og hæstv. ráðh. orðaði það áðan, því að ef þessi leið er ófær, eins og hæstv. ráðh. hefur haldið fram og þrásinnis hefur verið bent á og flestir eru farnir að sjá, þá á sú ríkisstj. ekki að sitja, sem er ekki fær um að leysa mál þjóðarinnar, heldur stefnir þeim út í ófæru, og fyrst hæstv. ráðh. gafst upp á tilraununum, sem fram fóru í september, þá átti hann ekki að halda þessari stefnu áfram, heldur átti hæstv. ríkisstj. að segja af sér. Ég veit með fullri vissu, að það er skoðun hæstv. fjmrh., að það sé ófært að halda áfram á þessari leið, og ég veit, að það er skoðun hans, að nú séu síðustu forvöð að breyta um stefnu, því að ef þessi hæstv. ríkisstj. hefur ekki möguleika á að leysa málið nú, þegar það er orðið svo aðkallandi sem raun ber vitni, hvenær á þá að gera það? Og ef hún er ekki fær um það, verður hún að halda þeirri stefnu, sem leiðir meir og meir út í ógöngur. Hæstv. ráðh. upplýsir, að það muni sjást síðar á þinginu, að ríkissjóður muni sízt verða aflögufær eins og komið sé fjármálum ríkisins, það muni menn sjá, þegar farið verði að ræða fjárhaginn. Þetta veit ég, að hæstv. ráðh. er ljóst og er alveg rétt. Og það, sem þessi stefna nálgast meir og meir, er, að ríkissjóður komist í gjaldþrot.

Eina leiðin í þessum málum, sem hægt var að fara með sæmilegu móti, var niðurfærslur á öllum sviðum. Það er eina leiðin, sem er fær, í hvaða formi sem hún verður valin. Þetta veit ég, að hæstv. ráðh. er ljóst. En það er augljóst, að með áframhaldi á þessari fjármálastefnu verður það neyðin ein, sem kennir okkur að færa niður á þann hátt, sem nauðsynlegt er. Ef hæstv. stj. hefur ekki þrek eða samheldni til að gera það, þá hefur hún ekki rétt til að stjórna fjármálum landsins, af því að þá stefnir hún út í þessa ófæru, sem er yfirvofandi.

Ég ætla ekki á þessu stigi málsins að ræða önnur atriði, enda hefur hv. 1. þm. Eyf. gert ýmsum atriðum skil, sem eru þess verð, að um þau sé rætt. Hin einstöku atriði koma líka fremur til umr. á seinna stigi málsins. Ég vil þó segja, að það er alveg efalaust, að þessi dráttur, sem orðið hefur á málinu, sem hæstv. fjmrh. upplýsir að stafi af því, að samningar hafi verið reyndir, en ekki tekizt, hann hefur valdið miklu tjóni, því að menn bjuggust við allan september, að ráðstafanir hæstv. stj. kæmu daginn eftir. Það hefur aldrei verið skoðun nokkurs manns í þessu landi, svo að ég viti til, sem þekkir inn á þessi mál, að hægt væri að komast hjá að taka ákvörðun fyrir 15. sept. Menn bjuggust við þeim 15., 16. og 17. sept. og drógu að kaupa vöru, sem þeir hefðu annars keypt á þessum tíma. Ég er ekki í vafa um, að þetta sparar hæstv. stj. veruleg útgjöld, því að þótt þessi l. eigi að ná aftur fyrir sig til 20 sept., þá sé ég ekki, að þar sé um nema tvennt að ræða, annaðhvort að stj. krefjist svo lélegra sönnunargagna fyrir kjötkaupum manna, að hægt sé að misnota það af mönnum, sem eru lítið heiðarlegir, eða þá að heimtuð verði svo skýr gögn, að menn hafi þau alls ekki fyrir hendi. Það mun sannast, þegar til kemur, að það verður ekki mikið um greiðslur fyrir þann tíma, sem liðinn var, þegar l. tóku gildi, því að það eru ekki nema örfáir menn, sem hafa heimtað nótur og reikninga fyrir þeim kjötkaupum, sem þeir hafa gert. Mikið af þessu fellur því algerlega fyrir utan það kjötmagn, sem neytendur fá greitt niður, nema sá kosturinn sé valinn að hafa sönnunargögnin svo rúm, að hætt sé við, að það verði misnotað.

Það er alveg víst, eins og hv. 1. þm. Eyf. benti á, að það tefur ákaflega mikið fyrir kjötsölunni, að reglugerðin liggur ekki enn þá fyrir. Hver einasti dagur, sem þetta dregst, spillir fyrirsölu á þessari vöru, það er alveg tvímælalaust. Þess vegna vil ég nota tækifærið hér og skora á hæstv. fjmrh. að láta ekki dragast deginum lengur, að frá þessari reglugerð verði gengið, heldur verði hún birt til þess að koma í veg fyrir meira tjón en orðið hefur.

Það eru líka ýmis atriði, sem eru ekki vafalaus í þessu máli. Hvernig á t. d. að fara með útlenda menn, sem alls ekki eru á skattskrá? Og hvernig er það með atvinnurekendur? Eru það þeir, sem veita stórum hlutafélögum forstöðu, eða eru það eingöngu þeir, sem hafa þrjá menn í vinnu eða fleiri? Með þessu móti verka þessi l. tvímælalaust þannig, að þeir, sem í mestu stríði hafa staðið af öllum atvinnurekendum, t. d. smábátaeigendur, sem eru kannske verst stæðir nú af öllum mönnum í landinu, þeir verða tvímælalaust taldir atvinnurekendur í þessu tilfelli. Þannig kemur það niður, þegar á að skipta þjóðinni í tvo flokka, annan, sem hefur réttindi, en hinn, sem er réttindalaus. Það er erfitt að gera slíkt með l., sem eru ekki meira hugsuð en þetta og gefin út í skyndi, eftir að samningatilraunir hafa strandað. Mér er því næst að halda, að það sé býsna margt í þessum l., sem verki allt öðruvísi í þjóðlífinu en löggjafinn hefur ætlazt til. Er þar eitt meðal annars, að þeir, sem taka kaup sitt í fæði, þeir eiga ekki að fá neina uppbót. Mér virðist, að þetta muni að sjálfsögðu taka yfir öll vinnuhjú í sveitum, og það eru ekki svo fáir, sem einnig hafa gert þá samninga í kaupstöðum að fá frítt fæði. Þetta verkar því skakkt samkv. tilgangi sínum.

Ég held satt að segja, að fyrst þessi leið var farin af hæstv. fjmrh., hafi tæpast verið hægt að ganga lengra en það, að ákvæði eins og þau, er viðkoma sjálfri mjólkinni, haldist fyrir þá, sem vilja samþykkja að fara þessa leið, en viðkomandi kjötinu, að það verði skammtað, en ekki gert upp á milli þegna þjóðfélagsins, því að útilokað sé að gera það á annan hátt en þann, að fram komi hið mesta misrétti. Ég vil benda þeirri n., sem fær mál þetta til meðferðar, á það, að ég held, að það sé bezta ráðið, úr því sem komið er, að breyta löggjöfinni í það horf.