21.02.1946
Efri deild: 69. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 793 í B-deild Alþingistíðinda. (908)

9. mál, áhrif kjötverðs á framfærsluvísitölu

Frsm. meiri hl. (Magnús Jónsson) :

N. varð ekki alveg sammála um þetta mál. Eins og sjá má, hefur einn nm. gefið út sérnál. og leggur á móti því, að frv. verði samþ., en meiri hluti n. leggur til, að frv. verði samþ. breytt eða óbreytt. Einn nm. hefur, eins og nál. á þskj. 379 ber með sér, skrifað undir með fyrirvara, sem mun felast í því, að hann óskar eftir, að nokkrar breyt. verði gerðar á frv.

Frv. þetta hefur legið ákaflega lengi hjá fjhn. Ég ætla, að á 5. mánuð sé liðið síðan málinu var vísað til nefndar. Hins vegar var það afgr. frá n., að ég hygg, 19. des. Sá nm., sem skrifaði undir með fyrirvara, hreyfði nokkrum breyt. á frv. í n., og ég fyrir mitt leyti hefði ekki verið fjarri því að vera með breytingum á frv., en á hinn bóginn get ég vel samþ. það óbreytt og býst ég við, að svo sé um meiri hluta n., einkum þar sem svo afar langur tími er liðinn síðan frv. var gefið út. Ég vil því mæla með því, að málið fái afgreiðslu. Brbl. eru nú komin í framkvæmd, og ég sé ekki, að þingið geti sóma síns vegna setið yfir málinu lengur. Tel ég því rétt að afgr. málið breytingalaust og láta atkv. skera úr um brtt., sem kynnu að koma fram. En afgreiðslu verður málið að fá bráðlega.

Um nál. minni hl. skal ég ekki mikið ræða, fyrr en frsm. sjálfur hefur mælt fyrir því, og kannske heldur ekki þá. Mér virðist nál., sem er nokkuð langt, vera mótað af stjórnarandstöðu og bera á sér mikinn eldhúsdagsbrag. Í því er verið að sýna fram á, hvað hæstv. ríkisstj. hafi komið illa fram í málinu, og býst ég við, að hæstv. ráðh. verði fyrir svörum varðandi það fyrir hönd meiri hl. nefndarinnar. Varðandi þetta mál, þá hefur víst minni hl. orðið fyrir vonbrigðum, þar sem ýmsar hrakspár hans hafa ekki rætzt. Ég mismælti mig nú hér, — hv. minni hl. hefur eflaust orðið glaður vegna þessa. Eftir því, sem ég hef heyrt, þá lítur mjög vel út með það, að öll framleiðslan seljist innan lands á þessu ári þrátt fyrir verkföll á Akureyri. Með söluna gengur vel, og er það gleðilegt. Mér sýnist hv. minni hl. ekki færa mikil rök móti því, að þetta frv. verði samþ. óbreytt, og breyt. á því komu ekki fram í nál. frá honum.

Ég læt þetta svo nægja að svo komnu máli og mæli með því, að hv. d. gangi frá málinu, svo að brbl. fái lögmæta staðfestingu sem fyrst.