28.02.1946
Efri deild: 74. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 796 í B-deild Alþingistíðinda. (913)

9. mál, áhrif kjötverðs á framfærsluvísitölu

Haraldur Guðmundsson:

Ég hef leyft mér að bera fram brtt. við þetta frv., og er hún á þskj. 471, við 7. gr. frv., þess efnis, að ríkisstj. skuli láta fram fara endurskoðun á þessum l. og leggja niðurstöður þeirrar athugunar fyrir næsta Alþ.

Ég drap nokkuð á það við 2. umr., að þessi l. hefðu verið sett, brbl., með nokkurri skyndingu, til þess að leysa þá erfiðleika, sem kölluðu að, þegar sláturtíð hófst á s. l. hausti, og að sjálfsögðu hefði verið opið, þrátt fyrir þá setningu l., að athuga, hvort aðrar leiðir væru til heppilegri í þessu efni. Ég neita því ekki, að ég óttaðist, að gera mætti ráð fyrir, að l. yrðu til þess að minnka kjötneyzlu innanlands. En eftir þeim tilkynningum að dæma, sem búnaðarráð hefur gefið út um þetta efni og lúta að því, að ætla megi, að ekki þurfi að flytja út meira af kjöti en þegar hefur verið selt til útlanda — ef ég man þetta rétt — tæp 200 tonn, þá virðist svo, að það, sem ég óttaðist í þessu efni, hafi ekki reynzt koma fram. Enda er nú svo langt liðið síðan framkvæmdir hófust eftir þessum l., að torvelt er að breyta þeim. Hins vegar hygg ég ekki orka tvímælis, að það fyrirkomulag, sem hér er sett upp, er bráðabirgðafyrirkomulag og beinlínis bundið við það, að ríkissjóður greiði svo eða svo mikinn hluta af kjötverðinu, samkv. því, sem fram er tekið í 1. gr. Hvenær sem breyt. yrði á slíku, tel ég sjálfsagt að taka þessi l. til endurskoðunar í heild, og ég tel rétt, að það sé beinlínis látið koma fram í l. sjálfum sem yfirlýsing Alþ., að þetta sé bráðabirgðafyrirkomulag, sem sjálfsagt sé að endurskoða á næsta þingi. Ég minntist á þetta við hæstv. fjmrh., og skildist mér hann ekkert hafa við þetta að athuga.

Annað atriði gerði ég nokkuð að umtalsefni við 2. umr., sem sé fyrirkomulagið á endurgreiðslunni, bæði að því er snertir samningu skýrslnanna yfir þá, sem endurgreiðslu eiga að njóta, og einnig hitt, hvernig endurgreiðslurnar eru inntar af hendi. Þessar skrár munu vera byggðar á framtölum manna fyrir árið 1944, og leiðir af því það, að því fer fjarri, að þær segi rétt til um, hverjir eigi að njóta og hverjir eigi ekki að njóta endurgreiðslna þessara. Nú eru komin framtöl manna fyrir árið 1945, sem að sjálfsögðu ber, að minni hyggju, að fara yfir og leiðrétta skrána í samræmi við þau. Hæstv. fjmrh. hefur tjáð mér, að þetta muni verða gert, en muni taka nokkurn tíma.

Loks er svo sjálft fyrirkomulagið á greiðslu uppbótanna, sem hefur dregizt, sem kunnugt er, og veldur nokkurri óánægju, og er sjálfsagt að taka það til athugunar, á hvern hátt það atriði mætti leysa. En sennilega má skoða það sem framkvæmdaatriði á því, sem l. segja, sem ráðh. hefur í sinni hendi að laga til.

Ég skal láta þetta nægja um brtt. mína og reyndar málið í heild, þó að ég hefði talið, að ástæða væri nú til í sambandi við þetta mál eða önnur skyld að ræða nokkuð um fyrirkomulag á kjötverzluninni í heild sinni. En ég skal sleppa því að þessu sinni og ekki tefja umr. um þetta mál, nema sérstakt tilefni gefist til. - Ég vænti, að hv. þd. fallist á þessar brtt. mínar og samþ. þær.