08.10.1945
Neðri deild: 3. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 829 í B-deild Alþingistíðinda. (959)

7. mál, skipakaup ríkisins

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, sem er staðfesting á brbl., er breyt. eða viðauki við l., sem samþ. voru á síðasta þ. um skipakaup ríkisins, en þau l. voru sett í sambandi við kaup á bátum frá Svíþjóð, og var það lánsheimild handa ríkisstj. í sambandi við þau kaup og einungis miðuð við þau viðskipti. Nú hefur hæstv. ríkisstj. séð ástæðu til síðan að gera nýjar ráðstafanir í þessum efnum, eins og hæstv. atvmrh. hefur gert grein fyrir. Eru þessar ráðstafanir fólgnar í því, að gerðir hafa verið samningar af ríkisstj., um byggingu á nokkuð mörgum mótorbátum í landinu sjálfu, og til þess að útvega fjármagn til kaupanna hefur hæstv. ríkisstj. gefið út þessi brbl., sem hér liggur nú fyrir að gera að l. — Ég verð nú að segja það, að ég hefði kunnað betur við þá málsmeðferð að leita fyrirfram á síðasta þ. heimildar til þessarar lántöku fyrir þessa báta, því að hæstv. ríkisstj. mátti vita það fyrirfram, að þeim fyrirætlunum sínum að greiða fyrir því, að menn geti keypt báta, gat hún ekki komið í framkvæmd nema því aðeins að hafa til þess eitthvert fjármagn. Ég hefði því kunnað miklu betur við þá málsmeðferð, og hið sama gildir um hið síðara málið hér á dagskrá, að hæstv. ríkisstj. hefði fyrirfram aflað sér heimildar til lántökunnar, þannig að gengið hefði verið frá þessu áður en síðasta þ. lauk störfum. Afleiðingin af því, að þetta var ekki gert, hefur nú orðið sú, að ríkisstj. hefur orðið að gefa út stórkostlega lántökuheimild. Er ákaflega slæmt að hafa farið út á þessa braut, og hefði verið hægt að komast hjá því, ef meiri fyrirhyggja hefði verið viðhöfð um þessi efni.

Um efni málsins sjálfs vildi ég nú segja nokkur orð. Það er eftir því samkomulagi, sem varð á milli stjórnarflokkanna, að gert var ráð fyrir því, að ríkisstj. hefði milligöngu um að útvega mönnum atvinnutæki og greiða fyrir því, að menn gætu fengið fljótt hentug atvinnutæki og þá með sem allra beztum kjörum, en spurningin er svo sú, hvort ríkisstj. ætlar að fara inn á þá braut að kaupa þessi atvinnutæki fyrir sinn eigin reikning, án þess að þau séu fyrirfram leigð eða seld öðrum og án þess að gerðir séu samningar við þá, sem tækin ætla að eignast, eða hvort hún ætlar aðeins að annast viðskipti fyrir þá, sem þess óska. Nú hefur niðurstaðan orðið sú, að hæstv. ríkisstj. hefur farið inn á þá braut að kaupa tækin fyrirfram — ég vil ekki segja upp á „spekulation“ — en hún hefur keypt tækin án þess að þau væru seld um leið eða frá því gengið, hverjir ætli að fá tækin eða hvort menn eru reiðubúnir til þess að gera kaupsamning við ríkisstj. um atvinnutækin. Eftir því sem hæstv. atvmrh. upplýsti og eftir því sem ég bezt veit, þá er það þannig með marga af þessum bátum, að þeir eru ekki seldir, að þeir eru ekki útvegaðir fyrir menn, heldur hefur ríkisstj. útvegað þá fyrir sig og ætlar síðan að ráðstafa þeim til annarra. Ég vil því í þessu sambandi gera fyrirspurn til hæstv. atvmrh, um það, hvernig þessu er háttað, m. ö. o. hvort margir af þessum bátum eru seldir einstaklingum eða félögum með föstum samningi, því að það er þetta, sem mestu máli skiptir, en ekki hitt, hversu margir hafa látið í ljós skoðun sína um, að þeir vildu eignast skip. Ég spyr um þetta vegna þess, að verð á þessum bátum er mjög hátt, eins og öllum er ljóst og hæstv. atvmrh. gat um, og sjálfsagt hærra en hægt er að fá báta fyrir frá útlöndum á næstunni eða jafnvel nú þegar eða hefði verið hægt, eftir því sem sumir telja. Ég hefði álitið, að hæstv. ríkisstj. hefði átt að leggja sig fram um það, áður en hún gekk frá samningum um smíði báta hér innanlands, sem ekki voru kaupendur fyrir, að láta athuga alla möguleika erlendis til að fá ódýrari báta og t. d., hvort ekki væri hægt að fá smíðaða báta í Danmörku og hvort það væri ekki ódýrara en hér heima, sérstaklega þar sem ekkert rekur á eftir því og aðstaðan er þannig hér á landi, að það stendur á fagmönnum í þessari grein, t. d. smiðum, og er því engin ástæða til að binda menn við þessar bátasmíðar, sem sennilega er hægt að fá framkvæmdar ódýrar annars staðar. Ég álít, að hæstv. ríkisstj. hefði átt að hafa þá stefnu að leitast fyrir og greiða fyrir einstökum bátafélögum um útvegun báta og skipa í samráði við þau við þeirra hæfi, en ekki að taka á sig að gera samninga án þess að hafa gengið frá því, hvort þeim væri þægð í því, sem síðar ættu að verða kaupendur að bátunum, eða hvort kaupendur væru til: Er enginn vafi á því, að ef þessi háttur væri við hafður, þá mundi ekki standa á mönnum að ákveða sig, hvort þeir vildu þetta, því að þeir menn, sem hér eiga hlut að máli og ætla sér að stunda þennan atvinnuveg, mundu gera það upp við sjálfa sig, hvort þeir vildu sæta þeim boðum, sem fyrir hendi væru. En það, sem ég vildi sérstaklega koma inn í umræðurnar, er þetta : Hversu margir kaupsamningar hafa verið gerðir um báta smíðaða innanlands við einstaklinga, félagasamtök eða bæjar- og sveitarfélög?