08.10.1945
Neðri deild: 3. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 831 í B-deild Alþingistíðinda. (961)

7. mál, skipakaup ríkisins

Eysteinn Jónsson:

Þetta var eins og ég hélt, að það mundi ekki vera búið að gera bindandi samninga við menn um kaup á þessum bátum, sem hæstv. ríkisstj. hefur samið um smíði á hér innanlands, og ég fyrir mitt leyti tel hér ekki rétt að farið. Ég hefði talið hina aðferðina réttari, að fyrirfram hefði verið gert upp við þá, menn, sem áhuga hefðu fyrir þessu, hvort þeir vildu gera samninga um þessa báta með þeim kjörum, sem hægt er að fá þá fyrir, eða hvort þeir vildu heldur, að aðrar leiðir væru farnar. Þannig tel ég, að hefði átt að halda á þessu máli, en tel misráðið að halda á því eins og hæstv. ríkisstj. hefur gert, ekki sízt með tilliti til þess útlits, sem nú er á bátasmíðum á næstunni. — Ég átti ekki við það, að rétt væri að fara þannig með þetta mál að byggja sinn bátinn eftir hverri teikningu, nákvæmlega eins og sérskoðanir hvers og eins segðu til, heldur væri hægt á skynsamlegan hátt að reyna að samræma þetta sem mest og hafa nokkra báta af sömu tegund, en þó að það væri gert, þá væri alltaf hægt að hafa þá aðferð, sem ég vildi benda á, sem sé, að samningar séu gerðir jöfnum höndum við skipasmíðastöðvarnar og þá, sem ætla að kaupa bátana.