08.10.1945
Neðri deild: 3. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 837 í B-deild Alþingistíðinda. (967)
7. mál, skipakaup ríkisins
Pétur Ottesen:
Ég vildi undirstrika það svar, sem hæstv. atvmrh. gaf hér áðan vegna fyrirspurnar minnar, sem sé, að þessari styrktarlánveitingu mundi verða hagað þannig, að styrktarlánið gegni jafnt yfir alla, miðað við, hversu bátarnir eru tiltækilegir til notkunar, og að það sé viðurkennt, að þeir uppfylli skilyrði, sem sett eru um styrkleika.
Hitt þykir mér miður, að hæstv. ráðh. skyldi ekki sjá sér fært að gefa mönnum af Akranesi, sem til hans leituðu, vilyrði fyrir því, að þeir fengju þessi styktarlán, því að ég geri ráð fyrir, að það verði færri, sem treysti sér til að nota hagkvæmari skilyrði, sem virðast fyrir hendi í Danmörku nú til að byggja báta, einmitt vegna þess, að það var ekki fyrir hendi nægjanleg trygging fyrir því að fá þessi styrktarlán til bygginganna.