15.04.1946
Neðri deild: 111. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 843 í B-deild Alþingistíðinda. (979)
7. mál, skipakaup ríkisins
Forseti (BG) :
Út af ræðu hv. 2. þm. S.-M., þar sem hann beinir tilmælum til forseta um að fresta afgreiðslu þessa máls, þá verð ég að svara því til, að ég sé ekki beina ástæðu til þess að fresta umr. nú, vegna þess að málið er nú til 2. umr. Og forseti mun sjá til þess, að tóm gefist þeim, sem það vilja, til þess að bera fram brtt. við 3. umr. málsins.