16.04.1946
Neðri deild: 112. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 847 í B-deild Alþingistíðinda. (988)
7. mál, skipakaup ríkisins
Eysteinn Jónsson:
Herra forseti. Það hefur margt komið hér fram í þessu máli síðan í nótt. Það er staðfest, að bátar, sem eru smíðaðir hér, eru helmingi dýrari en bátar, sem eru smíðaðir í Danmörku. Þetta var hæstv. ráðh. að reyna að breiða yfir, en ég held nú samt, að flestum öðrum en hæstv. ráðh. sé ljóst, hve erfitt það muni vera að vera í samkeppni á bátum hæstv. ríkisstj., sem eru nær helmingi dýrari strax og þeir koma á flot. Það er óhætt að slá því föstu, að ef hægt er að fá helmingi ódýrari báta, þá, kaupi enginn maður báta hæstv. ríkisstj., nema hún greiði þá niður úr ríkissjóði, og ég tel það yfirsjón að festa kaup á öllum þessum bátum, en það getur verið eðlilegt að styrkja skipasmíðastöðvar til framkvæmda á viðgerðum. Enda er það viðurkennt af hæstv. atvmrh., að ríkisstj. hefur kippt að sér hendinni með þær bátasmíðar, sem hún gat hætt við, þ. e. a. s. við Landssmiðjuna. Af hverju var hætt við að smíða þessa báta? Var ekki sjálfsagt að láta smíða þá líka? Nei, þetta er viðurkenning á því, að hér hafi verið farið skakkt að. Nú segir hæstv. ráðh., að 47 menn hafi pantað báta af annarri tegundinni, og ég man ekki, hvað margir af hinni. En nú vildi ég spyrja: Hvað eru þessar umsóknir gamlar, og hafa þessir menn pantað báta án þess að gera tilboð um verðið? Mér er nær að halda, að þessar pantanir séu gamlar, að þeim fylgi engar skuldbindingar og að menn muni krefjast að fá bátana ódýrari en ríkisstj. hefur ákveðið. Og það er einnig önnur hlið á þessu máli. Það er enginn efi á því, að það, að ríkisstj. var búin að semja um 45 báta, innanlands, hefur dregið úr bátakaupum erlendis. Það kemur gleggra í ljós, þegar nýju bátarnir koma frá Danmörku, hversu stjórninni hefur mistekizt með þetta. Það er alveg áreiðanlegt, að þessi staðreynd, að búið var að semja um smíði á svo mörgum bátum hér, hefur dregið úr því, að ríkisstj. reyndi að útvega ódýra báta erlendis.
Það vita allir, að ekki hefur verið lagt kapp á þetta eftir að búið var að ákveða bátasmíðarnar innanlands. Ég veit, að hv. 2. þm. Reykv. ætlar að fara að tala um, hvað Nýbyggingarráð hafi lagt sig mikið fram í þessu, og það er satt, að það hafa verið veitt leyfi, en það er vegna þess að ríkisstj. hefur ekki þorað annað. En það hefur ekki verið gengið fram í því að útvega bátana erlendis og ekki verið gerðar ráðstafanir til að láta smíða báta á lager fyrir íslenzka útvegsmenn.
En nú er ekki hægt að hverfa frá þessu, því að það er búið að gera samningana, og þess vegna er ekki hægt að leggja til, að frv. verði fellt, því að samningarnir standa eftir sem áður, en verður nú skynsamlegast að fara eftir till. hv. þm. V.-Húnv. um að takmarka þetta við 27 báta. Annars finnst mér, að ríkisstj. hafi ekki haldið á þessum málum sem skyldi.