03.10.1946
Efri deild: 10. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 34 í B-deild Alþingistíðinda. (152)
13. mál, skatt- og útsvarsgreiðsla útlendinga o.fl.
Jóhann Jósefsson:
Í sambandi við þetta mál langar mig til að beina þeirri fyrirspurn til skattayfirvaldanna — og þá sennilega til hæstv. fjmrh. —, þar sem hér er um að ræða breyt. á l. um skattgreiðslu útlendinga, hvernig því sé varið með skattgreiðslu af þeim ágóða, sem útlendir listamenn hafa af ferðum sínum hingað til landsins, — af tekjum af skemmtunum þeim, sem þeir efna hér til. Það eru, eins og allir vita, síðan stríðinu lauk, talsvert mikil brögð að því, að hingað flykkist erlendir listamenn — og það listamenn á heimsmælikvarða —, og er sjálfsagt ekki nema gott eitt við því að segja. En þar sem það fé, sem almenningur lætur nú af hendi rakna til slíkra manna, er víst ekki orðin nein smáupphæð, þá þætti mér fróðlegt að vita, hvort slíkum mönnum ber nokkur skylda til að borga skatt, fyrir utan skemmtanaskattinn, sem væri nokkuð í líkingu við það, sem t.d. íslenzkir atvinnurekendur og íslenskur almenningur verður að borga. Það hefur engin athugun farið fram á því, hve mörg hundruð þúsund renna nú í vasa slíkra útlendinga, sem nú koma hingað og halda hér skemmtanir, kannske nokkrar í Reykjavík og stærstu bæjunum og hverfa svo af landi burt. En ég gæti vel trúað, að það fé næmi ekki neitt litlu, sem íslenzkur almenningur lætur þannig af hendi rakna.
Ég ætla ekki að fara nánar út í þetta mál, það var aðallega það, sem ég vildi spyrja um í sambandi við skattalagaákvæði gagnvart slíkum útlendingum, hvort íslenzk löggjöf hefði nokkuð inni að halda, sem gerði útlendingum að borga af slíkum stundarhagnaði eftir stutta dvöl nokkuð, sem væri í samræmi við það, sem landsins fólk borgar sem skatt af tekjum sínum.