03.10.1946
Efri deild: 10. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 35 í B-deild Alþingistíðinda. (153)
13. mál, skatt- og útsvarsgreiðsla útlendinga o.fl.
Fjmrh. (Pétur Magnússon):
Ég verð að játa, að ég hef ekki athugað þetta atriði sérstaklega. Ég ætla þó, að ég fari rétt með það, að samkv. ísl. l. séu tekjur, slíkar sem hér ræðir um, ekki skattskyldar. Eftir frv., sem hér liggur fyrir, er gert ráð fyrir, að þriggja mánaða dvöl hér á landi skapi manni skattskyldu á þeim tekjum, sem hann hefur hér, en það, sem hv. þm. Vestm. er að ræða um, er það, að menn, sem ekki dvelja hér svo lengi, verði hér skattskyldir. Það er náttúrlega rétt, sem hann segir, að ekki er alls kostar eðlilegt, að tekjur, sem aflað er á þennan hátt, séu undanþegnar skatti í landinu, öðrum en skemmtanaskatti, sem segja má að sé greiddur af innlendum mönnum, en þó mundi væntanlega verða að kynna sér, hvernig þessu væri háttað hjá nágrannaþjóðunum, því að ef það er svo, að slíkir menn séu ekki skattlagðir þar, mundi það valda óánægju, ef farið væri inn á þá braut, svo að tekjur, sem íslenzkir listamenn öfluðu sér annars staðar, yrðu skattlagðar. Hins vegar vil ég taka þetta til athugunar, og mætti þá til 3. umr. hafa fyrir hendi gögn í málinu.