07.10.1946
Neðri deild: 12. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 47 í B-deild Alþingistíðinda. (177)

2. mál, ráðstafanir í sambandi við skilnað Íslands og Danmerkur

Hermann Guðmundsson:

Herra forseti. — Ég vildi aðeins segja örfá orð til þess að gera grein fyrir fyrirvara mínum, sem snertir 2. gr. Ég get að mörgu leyti tekið undir með hv. þm. Borgf. um þýðingu þeirrar greinar, þar sem hann heldur því fram, að hún mundi hafa meiri þýðingu en hv. frsm. vill vera láta. Mér skilst, að breyt. eigi aðeins að ná til handfæra á stærri og smærri skipum, en sú veiðiaðferð er að verða úrelt, eins og kunnugt er, þannig að þetta ákvæði mundi gilda aðeins skamma stund. Með hliðsjón af þessu er nauðsynlegt að gæta allrar varúðar í samskiptunum við Færeyinga sem aðra, þó að við viljum greiða fyrir þeim svo sem unnt er.

Hins vegar er niðurlag gr. óljóst, þannig að þar stendur „þar til samningum er lokið.“ Mér fyndist eðlilegra, að þetta væri bundið við ákveðinn tíma, enda skilst mér. að samninganefndin, sem um þetta hefur fjallað, hafi gengið út frá því sama, því að þegar fulltrúi Færeyinga spurðist fyrir um það í n., hvað liði framlengingu á fiskveiðaréttindum Færeyinga við Ísland, þá svaraði fulltrúi Íslands í n. því, að hann hefði heimild til að lýsa yfir, að Færeyingar mundu fá fiskveiðarétt sinn framlengdan til áramóta. Þess vegna er þessi brtt., sem hér liggur fyrir, ekki í samræmi við þá yfirlýsingu, sem gefin var af hálfu Íslands við þetta tækifæri.

En þrátt fyrir það, þó að ég sé óánægður með greinina eins og hún er og hefði talið betra að hafa ákveðið tímatakmark, mun ég ekki bera fram brtt. við hana, en bíða átekta og sjá, hvaða afgreiðslu málið fær í áframhaldandi umræðum um það.