07.10.1946
Neðri deild: 12. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 48 í B-deild Alþingistíðinda. (178)

2. mál, ráðstafanir í sambandi við skilnað Íslands og Danmerkur

Frsm. (Stefán Jóh. Stefánsson):

Það eru aðeins örfáar aths. út af umr., sem orðið hafa um málið. Hv. þm. Borgf. hafði nokkrar aths. fram að færa út af till. okkar í allshn. og minntist á tvö atriði, sem ég tel sjálfsagt að drepa á, annað er friðun Faxaflóa, hans mikla áhugamál, sem nú virðist horfa allvænlega, en hitt áhrif slíkra samninga, sem við kynnum að gera við Færeyinga og önnur ríki.

Hvað snertir friðun Faxaflóa, þá er þess að vænta, að sömu reglur gildi um Færeyinga og Íslendinga, því að fyllri réttar fengju þeir ekki að njóta, þó að þeir fái tímabundinn og takmarkaðan rétt, og mundu síðan verða að hlíta öllum þeim reglum, er íslenzkt löggjafarvald og stjórnvald vildi ákvarða í sambandi við friðun Faxaflóa.

Út af óttanum við beztu kjara samninga til handa Færeyingum vil ég taka það fram, að það atriði fékk ýtarlega athugun í samninganefndinni, m.a. þjóðréttarfræðinga, sem voru henni til aðstoðar, og voru allir á einu máli um það, að slík framlenging á samningnum gæti ekki skapað neitt í þá átt, að aðrar þjóðir, sem beztu kjara samninga njóta, gætu krafizt réttinda í skjóli þess. Ég hygg það engum vafa bundið, að þetta sé álit fræðimanna í þessu efni, en það er rétt hjá hv. þm. Borgf., að gætilega þarf að fara í þeim efnum, svo að ekki sé hætta á því, að þjóðir, sem hafa við okkur beztu kjara samninga, geti komið í kjölfarið á eftir.

Þá skildist mér bæði á hv. þm. Borgf. og hv. þm. V.-Sk., að þeir hefðu skilið ummæli mín svo í framsöguræðunni sem ég vildi setja í samband, eða óbeint a.m.k., kröfur okkar til fornrita frá Danmörku og fríðindi til handa Færeyingum. Ég hygg, að ég hafi tekið það skýrt fram í framsöguræðu minni, að það væri ekki sett í samband við annað, og það er ekki mín ætlun og var alls ekki ætlun íslenzku samninganefndarinnar að neinu leyti.

Hitt vitum við svo aftur, að eftir því sem samkomulag er greiðara og betra á milli tveggja þjóða, sem gera samninga, þá verkar það beint og óbeint hvað á annað að meira eða minna leyti, þó að ég vilji ekki setja í samband hvað við annað kröfur okkar til fornritanna og fríðindi til handa Færeyingum.

Hv. þm. Borgf. talaði um það að hætta kynni að vera á ferðum um það, að Færeyingar yrðu notaðir sem eins konar leppar fyrir hönd Dana til að stunda þessar fiskveiðar hér við land. Ég óttast nú ekki þessa leppmennsku ýkja mikið, fyrst og fremst vegna þess, að hér er um að ræða einna mest sérstaka notkun mjög frumstæðra veiðitækja og veiðarfæra, sem varla er hægt að búast við, að yrðu rekin í stórum stíl hér við land. Útgerð á opnum bátum fer mjög minnkandi hér við land af hálfu Íslendinga, og útgerð Færeyinga á litlum opnum bátum held ég, að verði ekki rekin í stórum stíl frekar en undanfarið, svo að ég held, að það sé ekki ástæða til að ætla, að þar verði leppmennsku við komið. Hið sama er að segja um handveiðarfæri á þilskipum, það er líka veiðiaðferð, sem fer minnkandi svo stórlega, að hennar gætir orðið sáralítið. Ég held hins vegar, að það gæti ekki heldur verið um tilhneigingu af annarra hálfu að ræða til þess að nota sér Færeyinga sem leppa til að framkvæma þessa veiðiaðferð við Ísland.

Að sjálfsögðu er öll varygð góð í slíku máli og þessu, og skal ég ekki úr því draga, en ég tel þá ekki ástæðu til þess að vekja upp neinn draug í þessum efnum, sem gæti orðið okkur til nokkurrar meinsemdar.

Ég hef þá í rauninni að verulegu leyti einnig svarað því, sem hv. þm. V.-Sk. sagði og beindi til mín og n., með þeim orðum, sem ég hef nú látið falla í sambandi við ræðu hv. þm. Borgf., sérstaklega hvað snertir sambandið eða sambandsleysið á milli óska Færeyinga og Dana, — sem sé fríðindi Færeyingum til handa hér við land um takmarkaðan tíma annars vegar, og kröfur okkar til fornritanna hins vegar. Og vísa ég, hvað snertir hv. þm. V.-Sk., til þeirra orða, sem ég hef látið um þetta mál falla nú og áður.

En út af því, sem hv. þm. V.-Sk. sagði, að sér fyndist einkennilegt að veita hluta af dönskum ríkisborgurum fríðindi fram yfir aðra danska ríkisborgara, vil ég segja fáein orð. Það er nú svo, að þó að Færeyingar séu enn danskir ríkisborgarar, þá eru þeir þó sérstök þjóð með sérstök þjóðareinkenni og sérstaka atvinnuvegi, og þegar óskir þeirra, mjög ákveðnar og einlægar, bornar fram af umhyggju fyrir afkomu færeyska fólksins yfirleitt, komu til okkar íslenzku nm., þá fannst okkur rétt að athuga, hvað hægt væri að gera, stuttan tíma og takmarkaðan, fyrir þessa minnstu þjóð veraldarinnar, jafnmikið og hún vildi upp úr þessu máli leggja. Og þegar það var skýrt fram tekið við dönsku samninganefndarmennina, að ekki kæmi til greina að framlengja atvinnuréttindi Dana yfirleitt hér á landi, þá var í sjálfu sér takmarkaður og, ég vil segja, góður skilningur dönsku samninganefndarmannanna um það atriði eitt, hvort Færeyingum ætti að gera þá greiðasemi um skeið, sem þeir fóru fram á.

Nú hygg ég, að það sé rétt, sem fram kom hjá Færeyingum í n., að það sé ekki eingöngu áhugamál Færeyinga, heldur líka að nokkru leyti Íslendinga sjálfra, að samskipti við Færeyinga í sambandi við útgerð þeirra á opnum bátum og á þilskipum haldi áfram.

Ég hef engar ástæður til þess að draga inn í þessar umr. rétt okkar og kröfur til íslenzkra fornrita og forngripa; það snertir ekki þetta mál nema þá að þessu leyti óbeinlínis, sem ég hef áður nefnt. Ég fullyrði, að haldið hefur verið á rétti Íslendinga svo vel sem hægt er, og ég veit, að skilningur Dana á þessu efni er vaxandi. Þetta skapar líkur fyrir, að þetta verði ákveðið á þann veg, sem Íslendingar mega vel við una. Ég held, að þeir, sem andmæla, vaxi fremur lítið af því. Þetta er örlítill greiði, sem við teljum rétt að veita Færeyingum og þeir leggja mikið upp úr. Okkur ætti að vera gleði að geta gert þeim þennan greiða, þegar það kostar okkur engin óþægindi. Þá er ekki skemmtilegt að láta Færeyinga vera vonbiðla okkar. Hv. 11. landsk. tók réttilega fram, að ekki er yfirlýst, að þeir hafi þennan rétt lengur en til ársloka. Við í allshn. féllumst á að binda þetta þannig, þangað til samningum er lokið, og Íslendingar geta lokið þeim samningum fljótt, ef þeir vilja.

Hv. þm. Borgf. sagði, að Íslendingar munu aldrei falla frá kröfunni um handritin. Ég er bjartsýnni en hv. þm., að við fáum úrlausn þeirra mála á góðan veg, og óneitanlega er skemmtilegra að fá þau með vinsemd gagnaðila. Ég vænti, að hv. þm. sjái sér fært að fylgja till. allshn., og ég álít enga hættu á fríðindaveizlu af Íslands hálfu.