08.10.1946
Efri deild: 13. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 55 í B-deild Alþingistíðinda. (197)
2. mál, ráðstafanir í sambandi við skilnað Íslands og Danmerkur
Gísli Jónsson:
Herra forseti. — Þetta mál hefur tekið nokkrum breytingum í Nd., og vil ég nú nota tækifærið til að gera nokkrar aths., áður en málið fer til nefndar, og vona ég, að allshn., sem væntanlega far mál. þetta til athugunar, taki aths. mínar til greina. Samkv. 1. gr. frv. eins og það upphaflega var eru aðeins veitt fiskveiðaréttindi og atvinnuréttindi, en nú samkvæmt frumvarpinu fá danskir þegnar, búsettir hér 6. maí 1946 eða fyrr, meiri réttindi en upphaflega og meiri en byggjast á samkomulagi milli samninganefndanna. Nú vita menn ekki, um hvað hefur verið samið og hvað látið hefur verið í té gegn þessum fríðindum. Felst í þessari grein kosningarréttur þeim til handa og krafa þeirra um tryggingaiðgjöld. Það virðist, ef þeir njóta þessa jafnréttis, þá eigi þeir ekki aðeins kröfu á fiskveiða- og atvinnuréttindum, heldur og öllum öðrum réttindum. Samkv. ákvæðum þessa frv. er samningurinn frá 1918 fallinn úr gildi. En hér eru upp tekin öll fríðindi Dana, en fríðindi Íslendinga niður felld, og vildi ég vita, hvort um þetta hefur verið samið í samningum nefndanna. Meðan samningurinn frá 1918 var í gildi, höfðu dönsk og íslenzk skip sömu réttindi í Danmörku, og í 6. gr. segir, að danskar og íslenzkar afurðir sæti betri kjörum en afurðir annarra þjóða. En síðan sambandsslitin fóru fram, hafa Íslendingar ekki fengið að landa fiski í dönskum höfnum og höfum við orðið að selja fiskinn í Englandi. En Færeyingar hafa getað notað sér þessi fríðindi og hafa selt fiskinn fyrir hærra verð en Íslendingar geta. Ég hef fengið skeyti frá firma í Danmörku, sem vill kaupa saltfisk fyrir meira verð en við getum nú fengið nokkurs staðar annars staðar, ef innflutningsleyfi fengist. Vil ég því vita, hvort þessi fríðindi eru tryggð. Sé það ekki, mun ég vilja breyta 1. gr. þannig, að á eftir „þegar þeir dvelja hér á landi“ komi: njóti þeir fiskveiða- og atvinnuréttinda, þó ekki lengur en til ársloka 1947. — Þarf þá ekki að veita Dönum sérstök réttindi nema sérstök fríðindi okkur til handa komi á móti. Viðvíkjandi 2. gr. tel ég vafasamt að leyfa smábátaveiðar, en þetta hefur lagazt nokkuð, m.a. með takmörkuðum árafjölda.