26.09.1946
Efri deild: 3. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 61 í B-deild Alþingistíðinda. (219)

4. mál, rannsóknarstofnun í búfjármeinafræði

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. — Ég vil þakka n. að sumu leyti fyrir afgreiðslu hennar a málinu. Ég tel brtt. hennar mikið til bóta, en ég tel, að hún gangi allt of skammt og að það þurfi að breyta þessum 1. miklu meira en gert er með brtt. n.

Ég held í fyrsta lagi, að það sé ekki hægt að setja þessi l., nema numinn sé úr gildi nokkur hluti l. nr. 64 7. maí 1940. Þau byrja á þann hátt, að rannsókna- og tilraunastarfsemi landbúnaðarins, sem nýtur styrks úr ríkissjóði, skuli vera framkvæmd á þann hátt, sem ákveðið er í lögum þessum. Nú koma hér ný l. og segja, að sumt af þessu skuli vera gert öðruvísi. 10. gr. er í 6 liðum, og þar er sagt, að eitt af verkefnum landbúnaðardeildar rannsóknarstofnunar háskólans sé að annast rannsókn búfjársjúkdóma, og í 11. gr. segir, að ráðh. skuli skera úr, ef ágreiningur verði milli tilraunaráðs og forstöðumanns deildarinnar. Ef á að fara eftir þessum eldri l., þá kemur það í bága við þessi nýju l. Það þarf því að nema burt úr eldri l. þau ákvæði, sem fara í bága við þau l., sem nú er verið að setja. Þetta hefur n. ekki athugað.

Þá tel ég sjálfsagt að nefna þessa stofnun eins og sá maður hefur gert, sem ráðinn hefur verið forstöðumaður hennar, og eins og hann er búinn að láta prenta á bréfhausa og umslög fyrir stofnunina. Hann kallar hana rannsóknarstofnun háskólans í búfjármeinafræði. Og hví eigum við ekki að kalla hana það, sem hann hefur skírt hana og ætlar sér að láta hana heita á íslenzku máli í framtíðinni.

Þar að auki er ekki sagt í þessum l., hvort þessi stofnun á frekar að rannsaka sjúkdóma búfjár eða manna, því að í l. gr. stendur „tilraunastöð í sjúkdómafræði á Keldum.“ Mér finnst, að þegar við erum að setja ný l. um svona nýja stofnun, þá verðum við að marka henni þrengri bás en svo, að hún geti hvort sem vill unnið að því að rannsaka sjúkdóma búfjár eða manna, en það getur hún gert eftir þessum l., hvort sem hún vill, en í mannasjúkdómum er önnur stofnun fyrir.

Þá finnst mér, að það nái engri átt, að ráðh. sé látinn ráða alla starfsmenn að þessari stofnun. Að sjálfsögðu þarf hann að ráða forstöðumann stofnunarinnar og aðra faglærða menn, en það nær engri átt, að hann eigi að fara að ráða t.d. þvottakonur eða sláttumenn, sem heyja handa búpeningi, sem þar er.

Þá finnst mér vanta í l., að ráðh. skuli ákveða laun starfsmanna stofnunarinnar eg skipa þeim niður launaflokka. Þeir eru ekki til í launal., og þá finnst mér eðlilegt, að ráðh. ákveði þeim laun, meðan þeir eru ekki komnir inn í Iaunal.

Enn fremur finnst mér, að þurfi að marka meir starfsemi stofnunarinnar en hér er gert. Það er nú ekki eitt orð um það í l. Ég segi það ekki út í bláinn, því að sumt af þeirri starfsemi, sem þessi stofnun ætti að hafa með höndum, er nú framkvæmt af rannsóknarstofu háskólans. T.d. hefur hún framleitt bóluefni í sauðfé og selt það, enn fremur búið til bóluefni við lungnabólgu í sauðfé og serum til að sprauta ær, svo að lömbin fái ekki blóðkreppusótt, og margt fleira. Þetta hefur gefið 80–90 þús. kr. tekjur árlega. Það er alveg víst, að rannsóknarstofa háskólans kærir sig ekki um að sleppa þessari framleiðslu til þessarar stofnunar, sem þarna er að koma upp.