30.09.1946
Efri deild: 8. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 63 í B-deild Alþingistíðinda. (225)
4. mál, rannsóknarstofnun í búfjármeinafræði
Þorsteinn Þorsteinsson:
Út af 3. lið langar mig til að fá nokkrar upplýsingar. Mér virðist, að við stofnunina verði margir dýralæknar og sérfræðingar og menntmrh. eigi að ákveða tölu þeirra. Ég vil gjarnan fá upplýsingar um fjölda þeirra, því að það munar miklu fyrir ríkissjóð, hver tala þeirra er.