23.07.1946
Sameinað þing: 3. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 91 í B-deild Alþingistíðinda. (274)
1. mál, bandalag hinna sameinuðu þjóða
Forseti (JPálm):
Hv. þm. hefur verið tilkynnt, að þessi fundur, sem átti að hefjast nú, geti ekki orðið fyrr en kl. 81/2 í kvöld, og set ég því fund að þessu sinni aðeins til þess að fresta. Ástæðan til frestunarinnar er sú, að hv. utanrmn. hefur tilkynnt, að hún geti ekki haft álit sitt tilbúið fyrr en eftir kvöldmatartíma. Fundi er þar með frestað til kl. 81/2 í kvöld.