23.07.1946
Sameinað þing: 3. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 110 í B-deild Alþingistíðinda. (282)
1. mál, bandalag hinna sameinuðu þjóða
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. — Það er ekki nema eðlilegt, að miklar umr. hafi orðið um þetta mál. Það hefur verið gerð grein fyrir afstöðu flokkanna í þessu máli, og vildi ég gjarnan gera grein fyrir afstöðu Sósfl. Við höfum álitið það nauðsynlegt, að Ísland gengi í bandalag hinna sameinuðu þjóða til þess að varðveita öryggi sitt og sjálfstæði með því að taka þátt í samtökum, sem vilja tryggja frið hinna stóru og smáu og tryggja jafnrétti og frelsi þjóða, hvort sem þær eru fámennar eða fjölmennar. Okkur er fyllilega ljóst, að sú stefna, sem miðar að slíku marki, er ekki búin að gera hugsjón sína að veruleika á svipstundu. Það þarf tvímælalaust baráttu til þess að knýja fram aðra eins hugsjón og þá, sem þessi stofnun hefur sett sér, og rangt af okkur að rýra eitthvað gildi þessa bandalags, sem við höfum hugsað okkur að ganga í, með því að telja fram sérstaklega þær hliðar þess, sem okkur virðast sérstaklega hafa einhverja fórn í för með sér fyrir þá hugsjón, sem þarna er barizt fyrir. Spursmálið er í fyrsta lagi það, sem greinilega kom fram hjá hv. frsm.: Viljum við að okkar leyti taka þátt í að vinna að framkvæmd þessarar hugsjónar, og finnst okkur, að möguleikar séu til þess, að við getum bezt tryggt öryggi okkar og frelsi með því að standa innan þessa bandalags? Við erum vopnlaus smáþjóð, og við vitum, að ágirndin er rík í heiminum, og þetta eru þau einu samtök, sem til eru, þar sem smáþjóð getur flutt mál sitt, þegar hún verður fyrir misrétti af hálfu annarra og stærri þjóða. Við vitum að vísu, að þessu bandalagi er þannig háttað, að stórveldin fimm hafa neitunarvald og ekki er hægt að koma fram refsiaðgerðum gagnvart þeim. Hins vegar vitum við, að sá „móralski“ hugsunarháttur, sem fylgir, þegar mál eru flutt á þessum vettvangi, er mikill í heiminum eftir reynslunni, þannig að það er mikils virði fyrir þá, sem eru smáir, að geta flutt slík mál á þessum vettvangi. Og þegar heimurinn eftir alla þessa styrjöld, sem hann hefur háð, gerir tilraun til þess að skapa alþjóðarétt, ber engan veginn að vanmeta þann möguleika fyrir þá, sem eru fáir og smáir, að geta flutt slík mál á þessum vettvangi. Við vitum af sögunni, hvernig það gekk með þjóðabandalagið, þegar allar þjóðir höfðu neitunarvald, en ekkert framkvæmdavald. Það sæti sízt á okkur að hafa á móti því, þó að þessi stofnun hefði að einhverju leyti framkvæmdavald.
Það hefur hér verið rætt mest um það, hvaða skyldur við tækjumst á hendur, og mér finnst ekki mikið þurfa úr því að gera, ef hægt er að firra heiminn þeirri skelfingu, sem dunið hefur yfir hann síðasta áratug, og ég held, að það sé engan veginn rétt að gera lítið úr því, þegar við miklum fyrir okkur þær skyldur, sem fylgja því að ganga í bandalag hinna sameinuðu þjóða.
Þær skyldur, sem við þyrftum e.t.v. að vinna, er að taka þátt í verðskulduðum ráðstöfunum gagnvart ríki, sem gerðist brotlegt í þeim efnum að skerða heimsfriðinn. Og ég held, að það sé einmitt það, sem við eigum ekki að skoða huga okkar um að gera.
Þá kemur það atriði, sem er mestur þyrnir í augum smáþjóðanna, 43. gr. sáttmálans. Í sambandi við hana hefur verið rætt um það hér, hvort þess yrði krafizt af Íslendingum, að þeir færu að taka upp vopnaburð og koma á heræfingum. Ég verð að segja, að ég álít það algerlega fráleitt, að öryggisráðinu detti slíkt í hug. Og það hefur meira að segja í sambandi við jafnvoldugt ríki og Bandaríki Norður-Ameríku verið rætt um það á þingum þeirra, að þau ættu ekki að þurfa að senda her út úr landinu sjálfu. Og almennt er gengið út frá því, að það verði stórveldin, sem leggi til her. Það er líka alveg fráleitt að hugsa sér að ætla að sameina fjölda þjóða með ólíkum tungumálum í einn her undir einni herstjórn og skipulagi, þegar svo þar við bætist, að hér á landi er vopnlaus þjóð, sem hefur ekki haft her allan sinn aldur, og þjóð, sem hefur að vísu framkvæmt þá hugsjón, sem margar hinar þjóðirnar viðurkenna, að væri þeirra hugsjón, þó að þeim hafi ekki verið það fært að framkvæma bana. Það er svo langt frá þeirri hugsjón, sem bandalag hinna sameinuðu þjóða vill vinna fyrir, að slíkt gæti komið til mála, að það færi að krefjast þess af þeirri fámennu og einu þjóð heimsins, sem aldrei hefur barizt með vopnum, að hún færi að æfa og leggja til her. Ég álít, að eftir 43. gr. sáttmálans mundu fyrst og fremst verða þær kröfur til okkar gerðar, ef á þyrfti að halda, að við leyfðum herflutninga um land okkar.
Nú verð ég að segja, að mér finnst ekki sérstaklega mikil líkindi til þess, að til slíks kunni að koma. Samkvæmt reglu þessa bandalags eru stórveldin öll fimm úr leik, ef þau fara í stríð. Hins vegar eru svo Norðurlöndin, sem hafa friðsömustu íbúa heimsins, og tæpast við því að búast, að þau færu að verða árásarríki, sem bandalagíð þurfi að fara að beita ráðstöfunum gagnvart. Nei, möguleikarnir eru svo hverfandi litlir fyrir því, að slíkar kröfur verði til okkar gerðar, að við þurfum að taka þátt í slíkum ráðstöfunum.
Hins vegar er það skýrt tekið fram í bandalagssáttmálanum, að um slíka herflutninga skuli semja, og skuli slíkir samningar staðfestir af viðkomandi ríki samkv. stjórnskipunarvenjum í hverju landi.
Það mun nú margur spyrja, hvert framlag okkar yrði, ef þessar þjóðir, sem að öryggisráðinu standa, þyrftu að heyja stríð. Við mundum samkv. 41. gr. sáttmálans taka þátt í viðskiptalegum ráðstöfunum. En hver voru framlög okkar í síðasta stríði? Og þegar talað er um þær fórnir, sem aðrar þjóðir hafa fært, er vert að minna sameinuðu þjóðirnar á það, ef þær vilja gera lítið úr því, sem við létum af mörkum, að tjón okkar í mannslífum við að annast matflutninga til sameinuðu þjóðanna var meira en það tjón á mannslífum, sem Bandaríki Ameríku biðu í síðustu styrjöld. Þannig hefur verið haldið á málum okkar, ef farið er að ræða um þessi mál hjá sameinuðu þjóðunum, að þá höfum við Íslendingar rök á borðinu til þess að sanna það, að við mundum ekki skorast undan að taka hlutfallslega jafnmikinn þátt og aðrar þjóðir í þeim ráðstöfunum, sem gera þyrfti, þó að við neituðum um herstöðvar. Hins vegar er það sameiginlegt álit utanrmn. og ríkisstj. og, eins og komið hefur fram, vilji allrar þjóðarinnar, að veita ekki sameinuðu þjóðunum herstöðvar í friði né stríði. Spurningin, sem fyrir okkur liggur og ég vil sérstaklega tala um í sambandi við ræðu hv. 3. landsk., er. Á hvern hátt komumst við hjá, að þær kröfur verði til okkar gerðar, að hér verði settar herstöðvar af hálfu sameinuðu þjóðanna? Af hálfu þeirra manna, sem hafa viljað telja þetta mál illa undirbúið og þjóðin hafi fengið lítið um þetta að vita, hefur því verið haldið fram, að sænskir fræðimenn telji mikla annmarka á að ganga í þetta bandalag. Þessir fræðimenn leggja raunar áherzlu á það, þegar þeir draga saman allt, sem þeir álíta sérstaklega mæla á móti því að ganga í bandalag sameinuðu þjóðanna, að þetta sé ýmsum vandkvæðum bundið, þar á meðal að þeir séu neyddir til að skaffa sér herskipulag, sem ekki sé bezt fyrir þá til sjálfsvarnar, og máske yrðu gerðar til þeirra kröfur um að láta í té herstöðvar og gera aðra fyrirgreiðslu, sem gæti orðið til óhagræðis fyrir landið, gæti t.d. verið óþægilegt að gefa upplýsingar um herafla landsins. En samt sem áður er hugsanlegt, að þeir yrðu að ganga inn á þetta, segja þeir, því að þrátt fyrir þessa galla og óþægilegar afleiðingar, sem það gæti haft í för með sér fyrir Svíþjóð að gerast meðlimur sameinuðu þjóðanna, verði að athuga það, að öryggisráðið skuli, samkv. 6. lið 2. gr., sjá um, að þau ríki, sem eru ekki meðlimir, breyti í samræmi við grundvallarreglur þess, eins og það álítur nauðsynlegt til að tryggja alheimsfrið og öryggi. Þess vegna er það, að Svíar, þrátt fyrir það að þeir sjá þessa galla, leggja eindregið til, að Svíar gangi í bandalag sameinuðu þjóðanna, því að þá séu meiri möguleikar fyrir þá að losna við að láta í té herstöðvar eða verða við öðrum kröfum. — Það er því auðséð, að þjóðir, sem hafa athugað þetta mál og hafa herstyrk, og það meira að segja mjög myndarlegan herstyrk, og eru þannig settar, að ekki er ólíklegt, að kröfur yrðu til þeirra gerðar um hernaðarlega aðstoð, — þær álíta, þó að þær séu á móti því raunverulega, að þær hafi meiri möguleika til að standa á móti slíkum kröfum með því að vera í bandalagi hinna sameinuðu þjóða en ef þær væru utan við það.
Ég vil svo fyrir hönd Sósfl. lýsa yfir því í samræmi við það, sem hér hefur komið fram, að ef til samninga kemur milli öryggisráðsins og Íslands, eftir að Ísland er meðlimur í bandalaginu, munum við einnig beita okkur gegn því, að Ísland láti sameinuðu þjóðunum herstöðvar í té, enda okkar skoðun, að við getum fyllilega uppfyllt þær skyldur, sem Ísland tækist á hendur með inngöngunni, án þess.
Ég held því, að þau rök, sem hér hafa verið færð fram gegn því, að Ísland gangi í bandalag sameinuðu þjóðanna, geti ekki talizt sterk, ef þau eru miðuð við það ástand, sem nú er í heiminum, og að ríki, sem utan við bandalagið stæðu, stæðu verr að vígi en sameinuðu þjóðirnar.
Hér hafa komið fram brtt. og frestunartill., sem ég satt að segja hafði ekki búizt við, að mundu koma fram. Ég vil sérstaklega minnast á till., sem hv. 3. landsk. hefur flutt hér og felur í sér m.a., að jafnframt því, að Ísland gangi í bandalagið, krefjist það þess, að allur Bandaríkjaher, sem hér er, fari af landi burt. Það er vitað, að þjóðin er þeirrar skoðunar, að þessi her ætti að vera farinn af landi burt. Það er enn fremur vitanlegt, að ráðh. Sósfl. hafa nú fyrir ársfjórðungi lagt fram till. í ríkisstj., þar sem það er lagt til, að þess sé óskað, að þessi her fari, Það er vitanlegt, eins og fram hefur komið í ályktunum og samþykktum um land allt, að hugur þjóðarinnar hnígur allur í þá átt að krefjast þess. Við sósíalistar höfum ekki áður lagt fram till. um þetta mál hér í þinginu, og ég hafði ekki hugsað mér að bera fram till. um þetta sama á Alþ. nema ég væri öruggur um, að slík till. yrði samþ., af ástæðum, sem ég veit, að allir hv. þm. skilja. Sósfl. hefur einnig ákveðið óskað eftir þessu, fylgt þessari kröfu, og ríkisstj. og öll þjóðin, og ég vil ítreka þessa kröfu hér. Það er krafa Sósfl., að sá her, sem hér dvelur, fari af landi brott. Og svo framarlega sem ekki verður orðið við þeirri ósk af hálfu Bandaríkjanna, bæri Íslandi, eftir að það væri komið í bandalagið, að nota þann rétt til þess að kæra þessa þrásetu hersins fyrir öryggisráðinu. Það er engum efa bundið, að þjóðin óskar þess,: Að þessi her hverfi úr landinu og væri þegar horfinn. Það er þegar engum efa bundið, að það er vettvangur fyrir okkur Íslendinga að geta staðið sem meðlimur hinna sameinuðu þjóða, til þess að fá framgengt þeim málum, sem við álítum, að séu skilyrði fyrir sjálfstæði okkar lands. Þess vegna hefur Sósfl. alltaf verið því fylgjandi, að við gerðumst meðlimir hinna sameinuðu þjóða, þess vegna ekki viljað setja nein skilyrði fyrir því, en láta hitt koma vel fram, hvernig við mundum halda á málum, þegar til samninga kæmi varðandi 43. gr., þar sem Íslendingar væru jafnrétthár aðili og ríkisráðið sjálft. Þess vegna álít ég það sé nauðsynlegt og heppilegt og hafi verið rétt til stofnað af ríkisstj. að leggja þessa till. fyrir þetta þing nú og kalla það saman og tryggja það, að þetta verði afgr. nú á þessu þingi og ekki frestað. Ég álít, að Íslendingar stigju með því að ganga inn í sameinuðu þjóðirnar stærsta sporið, sem þeir hafa stigið næst á eftir lýðveldisstofnuninni, eðlilegt skref, sem mætti verða okkur til blessunar. Við vitum, hvaða erfiðleikar eru á því í veröldinni að fá skapað skipulag, sem geti haldið við friðnum í þessum heimi. En ef það er ekki hægt eftir það, sem veröldin hefur gengið í gegnum núna, þá á ég bágt með að sjá, hvenær það ástand gæti skapazt í veröldinni, að mannkynið bæri gæfu til þess að koma slíku skipulagi á. Og þegar tilraun er gerð sem þessi, ættum sízt af öllum við Íslendingar að láta í okkur standa að gerast meðlimir í slíkum félagsskap og gera það lítið, sem við getum, til þess að sýna og sanna, að við viljum vera með og standa á verði gagnvart því, sem gæti orðið til skerðingar á okkar frelsi.