25.07.1946
Sameinað þing: 4. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 114 í B-deild Alþingistíðinda. (284)
1. mál, bandalag hinna sameinuðu þjóða
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. — Ég get ekki látið þetta mál fara um hv. þ. án þess að segja nokkur orð um það. Það, sem sérstaklega knýr mig til að taka til máls, er aðferð sú, sem hér hefur verið viðhöfð, þar sem vanrækt hefur verið, eins og hv. þm. Borgf. tók fram, að láta þjóðina fá vitneskju um málið. Og það er ekki aðeins, að þetta hafi verið vanrækt, heldur hefur þjóðinni beinlínis verið skýrt rangt frá málavöxtum. Morgunblaðið fer t.d. alrangt með 19. júlí, þegar það er að ræða um þetta. Það er því ekki aðeins, að þjóðin hafi verið dulin hins sanna, heldur hefur það lítið, er henni hefur verið sagt, verið rangt. Þetta harma ég og þarf því fremur, að hér er um mikilsvert mál að ræða. Af því andrúmslofti, sem maður finnur t.d. hér í bæ, er augljóst, að þjóðin er yfirleitt á móti þessu máli, og þess vegna er reynt að svíkjast aftan að henni á þennan hátt. Ég get því mjög vel sætt mig við, að till. hv. þm. Borgf. nái samþykki. Ég tel rétt að gefa þjóðinni kost á að láta vilja sinn í ljós um þetta, þó að hún verði nú ekki spurð um það á sama hátt og hægt hefði verið í tilefni af kosningunum.
Hér eru nú komnar fram nokkrar ólíkar till. Till. hæstv. ríkisstj, væri í sjálfu sér ekki afleit, ef málið væri í höndum manna, sem hægt væri að treysta til að fylgja málinu eftir, en ég ber ekki minnsta traust til hæstv. ríkisstj. í því efni. Hér hefur áður verið samþ. till., orðsending til erlends stórveldis, sem var svo óákveðin, að þeir, sem áttu að taka við henni, gátu ekki skilið hana; að minnsta kosti var hún ekki skilin svo sem tilgangurinn virðist hafa átt að vera, ef hún hefur þá yfirleitt verið send, en ég tel reyndar líklegra, að hún hafi alls ekki verið send, en að viðtakandi hafi ekki getað skilið hana, enda þótt vel geti svo hafa verið, því hún var beint samin til að vera óskiljanleg. Ég hef því enga trú á, að þessi till., sem hér liggur fyrir, muni yfirleitt verða send.
Þá tel ég sjálfsagt að taka fram í brtt. hér, að það eigi að vera komið undir einhverjum aðila, sem maður geti treyst, hvort þessu eigi að fylgja einhver sérstök orðsending.
Um till. á þskj. 9 er það að segja, að ég gæti verið henni fylgjandi, af því að ég vil ekki hafa hér neinar herstöðvar. Ég get skilið, að hún eigi að mæta andstöðu manna eins og þess frambjóðanda Sjálfstfl., sem var í framboði á móti mér, en hann lýsti yfir því, að hann vildi hafa hér her og herstöðvar frá Bandaríkjunum og semja við þau að vernda okkur, eins og hann orðaði það. Ég veit reyndar ekki, hvort hann talaði þar fyrir munn Sjálfstfl. Hann vítti mig harðlega fyrir það, að ég talaði af eigin sannfæringu, og virtist telja, að maður ætti skilyrðislaust að fylgja flokki sínum í öllu, og því má telja líklegt, að hann hafi talað fyrir munn Sjálfstfl.
Ég mæli því með þeirri till., að þessu máli verði frestað, svo að þjóðin geti fengið tækifæri til að segja sitt álit um það, helzt með almennri atkvæðagreiðslu. En fáist það ekki, fylgi ég till. á þskj. 9. Fáist hím ekki samþ., er vafasamt, hvort tilgangur hennar næst með einhverjum fyrirvara, sem hæstv. stj. kynni að senda, sem ég treysti henni nú alls ekki til að gera, þó samþykkt yrði. Slíkan munnlegan fyrirvara tel ég lítils virði.
Ég hef þá gert grein fyrir afstöðu minni og skal ekki fjölyrða um málið frekar, en vil aðeins taka fram, að það er alveg eftir öðrum einræðistilhneigingum hæstv. ríkisstj., að hún reynir nú að keyra þetta mál fram á bak við þjóðina, en svipaðar tilhneigingar komu t.d. fram í vetur, er hún sat á málum, sem henni voru óþægileg, þó að vitanlegt væri, að þingmeirihl. væri fyrir þeim.