25.07.1946
Sameinað þing: 4. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 116 í B-deild Alþingistíðinda. (287)

1. mál, bandalag hinna sameinuðu þjóða

Bernharð Stefánsson:

Herra forseti. — Ég skal ekki tefja hv. Alþ. lengi. Ég vil aðeins láta það í ljós, að ég harma mjög þá afgreiðslu, sem mér virðist, að þetta þýðingarmikla mál muni fá. Ég, eins og flestir eða allir mínir flokksmenn, hafði ákveðið að sætta mig við þær yfirlýsingar, er hæstv. forsrh. lofaði að gefa til fulltrúa þeirra ríkja, sem þetta mál kemur mest víð. En mér finnst málið horfa töluvert öðruvísi við, þegar sú till. er fram komin, sem hér liggur fyrir okkur á þskj. 9. Mér finnst ákaflega varhugavert fyrir Alþ., úr því að þessi till. er fram komin, að fella hana. Hvað fyrri hlutann snertir, virðist mér, að það muni í augum heimsins draga mjög úr gildi þeirrar yfirlýsingar, sem ég efast alls ekki um, að hæstv. forsrh. muni gefa. Og að fella síðari málsgr. finnst mér draga mjög úr gildi þess að óska síðar eftir samningum við Bandaríkin um að draga herafla sinn burt af Íslandi. Ég er sannfærður um það, að okkur Íslendingum ber að reyna að styðja þetta þjóðabandalag, sem nú er stofnað, þó að ýmsir annmarkar séu á því í byrjuninni. Og engin þjóð í heiminum hefur eins mikla ástæðu til að óska, að því farnist vel, eins og einmitt við Íslendingar. En ég er jafnsannfærður um það, að þetta stóra skref frá okkar hendi, Íslendinga, hefði þurft að eiga sér þannig stað, að um það hefði verið fullt samkomulag á Alþingi og með þjóðinni. Nú virðist svo sem þetta stóra mál geti ekki orðið afgr. með þeim hætti, sem einn er í raun og veru sæmilegur, þ.e.a.s. nú í þetta sinn. Og þá held ég fyrir mitt leyti, að betra væri að fresta þessu skrefi um eitt ár, þó að illt sé, heldur en að taka það nú með sundrung. Ég álít ekki hægt fyrir þá menn, sem vilja undir öllum kringumstæðum mótmæla því, að erlendur herafli dvelji í landinu, að greiða atkv. móti till. á þskj. 9, hvorugum hluta hennar. En hitt er annað mál, að mér finnst, að málinu hefði verið borgið, þó að þessi till. hefði ekki komið fram, með þeim yfirlýsingum, sem hæstv. forsrh. hefur gefið. Og langsamlega æskilegasta lausnin á þessu máli, úr því sem komið er, væri sú, að tillögumaður að þskj. 9 tæki till. aftur, þar sem það er vitað, að það á hvort sem er að gera það sama og till. fjallar um. En ef það er ekki fáanlegt, held ég það væri bezt og skynsamlegast fyrir Alþ. að fresta málinu um hríð og samþ. þar af leiðandi þá dagskrártill., sem hv. þm. Borgf. hefur hér flutt. Ég mun a.m.k. út úr vandræðum, vegna þess hvernig málíð er komið, greiða henni atkv.