25.07.1946
Sameinað þing: 4. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 119 í B-deild Alþingistíðinda. (289)
1. mál, bandalag hinna sameinuðu þjóða
Gunnar Thoroddsen:
Á síðasta fundi sameinaðs þings gerði hv. 3. landsk. þm. nokkrar aths. út af álitsgerð þeirri, sem við Einar Arnórsson höfum samið og fylgir þessari till. Út af þeim aths. og jafnframt brtt. hv. þm. á þskj. 9 vil ég leyfa mér að segja nokkur orð. Hann sagði, að íslenzku sérfræðingarnir hefðu tilhneigingu til að gera sem minnst úr öllum skuldbindingum samkv. sáttmálanum, og væri að því leyti mikill munur á áliti okkar og áliti sænsku sérfræðinganna. Hann nefndi nokkrar tilvitnanir í þessu sambandi. Ég ætla ekki að rekja þær hér og samanburðinn, sem hann gerði, — það yrði of langt mál, — en taka fram, að tilvitnanir hans byggjast algerlega á misskilningi, eru slitnar úr samhengi og að sumu leyti rangfærðar. Þetta er að ýmsu leyti eðlilegt. Eins og ræða hans bar vott um, hafði hann allt of skamman tíma til að kynna sér málið. Sannleikurinn er sá, að niðurstöður íslenzku og sænsku lögfræðinganna um skuldbindingar sáttmálans eru í öllum meginatriðum samhljóða. Og ræðumaðurinn, sem talaði næst á eftir, hv. þm. Borgf., dró fram junis atriði úr álitsgerðinni, þar sem sérstaklega er vakin athygli á því, sem er varhugavert og aðgæzluvert fyrir okkur við inngöngu í bandalagið. Ræða hans var því í rauninni fullt svar við þessari ásökun hv. 3. landsk. þm.
En í sambandi við það mál, sem hér hefur aðallega verið rætt, herstöðvamálið, þá er rétt að hugleiða, í hverjum ákvæðum sáttmálans sé falin sú skylda að láta í té herstöðvar, sem hleypir þessum hv. þm. í slíkan ofsa sem hér hefur brotizt fram. Ég hef hvergi rekizt á það í sáttmála sameinuðu þjóðanna, að herstöðvar séu nefndar eða þeirra krafizt. Í 43. gr. eru almenn ákvæði um skyldur þjóða, þegar öryggisráðið hefur ákveðið að grípa til hernaðarráðstafana. Eru þar nánari ákvæði, í hverju slík aðstoð gæti verið fólgin. Er augljóst, að það er ákaflega margvísleg aðstoð, sem til greina getur komið. Í álitsgerðinni á bls. 16 eru nefnd dæmi um, hvað gæti hugsanlega fallið undir þessa aðstoð. Þar eru nefndar „beinar fjárgreiðslur, afhending matvæla, herbúnaðar, vopna, skotfæra, lán samgöngutækja: járnbrauta, bifreiða, skipa, loftfara, pósts, síma og útvarps, flutningur herliðs, hergagna, vista, réttur til að flytja herlið, hergögn og annað um yfirráðasvæði ríkis (enda sérstaklega getið um .,rights of passage“), afnot herstöðva fyrir flugvélar, herskip, kafbáta, landher.“
Allt þetta getur komið til greina. Og vegna þess að sérfræðingarnir sænsku nefna, að eitt af því, sem hugsað hafi verið í sambandi við þessa grein, séu herstöðvar, þá leiðir hv. þm. af því þá ályktun, að við séum skyldir til að láta herstöðvar í té.
Það er öllum ljóst, sem lesa þessa grein sáttmálans með athygli, að það er fjöldi tegunda af aðstoð, sem til greina getur komið, en að hvert ríki þarf aðeins að láta það í té, sem það sjálft, eftir sínum eigin stjórnskipunarlögum, gengur inn á. Ef skilningur þessa hv. þm. væri réttur, — að alla aðstoð, sem gæti rúmazt innan 43. gr., væri skylt að láta í té, — þá mætti eins segja, að ef þessi hv. þm. gerði samning við einhvern flokk, t.d. þann, sem að sumu leyti stendur honum næst, Framsfl., um að veita flokknum aðstoð eftir því, sem síðar yrði ákveðið nánar með samningum, þá mætti flokkurinn nytja hann og nota til hvers sem flokknum sýndist. Ég held, að það sé varla orðum eyðandi að þeim fjarstæðum, sem hann hefur borið fram í sambandi við þetta mál.
Það er eðlilegt, að nefndar séu herstöðvar í þessu sambandi, vegna þess hve miklar umræður hafa farið fram um það mál. Ég lít svo á, að ef til hernaðaraðgerða kæmi, — ef öryggisráðið ákvæði samkv. 39. og 42. gr. að grípa til hernaðaraðgerða, — þá mundi ekki krafizt af smáþjóðunum að leggja fram herlið, jafnvel þótt þær væru margfalt stærri og sterkari en við, af því að það er óframkvæmanlegt að setja smáheri frá mörgum löndum undir eina stjórn. Það er vitanlegt, að það mundi fyrst og fremst verða hlutverk stórveldanna. Um aðstoð smáþjóðanna getur margt komið til greina, m.a. ýmislegt af því, sem nefnt er í þessari álitsgerð og ég hef rakið. Sem dæmi má benda á eina bræðraþjóð okkar, Norðmenn. Þó að þeir létu hernaðaraðstoð í té í síðasta stríði, þá lögðu þeir annað fram, sem var þýðingarmest, hinn mikla skipaflota sinn. Ég skal ekkert fullyrða um, hvers krafizt yrði af okkur, en við eigum skip og önnur samgöngutæki og framleiðum matvæli, sem gætu komið þjóðum bandalagsins að stórfelldu gagni. Það er margt, sem öryggisráðinu kæmi að miklu gagni, annað en herstöðvar. Að því er herstöðvar snertir, þá er samkvæmt þeim atkvæðareglum, sem gilda í öryggisráði, fyrst og fremst ekki hægt að krefjast hér herstöðva, nema öll stórveldin séu sammála um það og tvö ríki önnur í ráðinu og aðeins þegar fyrir liggur samkv. úrskurði öryggisráðs ógnun við friðinn, friðrof eða árás.
Það er fjarstæða, sem þessi hv. þm. heldur fram, að ef við göngum í bandalagið, þá yrði skylt að hafa hér setulið að staðaldri. Það kemur ekki til mála og væri brot á sáttmálanum. Einnig er þess að gæta, að þótt öryggisráðið kæmi sér saman um að fara fram á herstöðvar, þá höfum við samkv. sáttmálanum skýlausan rétt til að neita þeirri málaleitun. Hitt er annað mál, eins og hv. þm. Borgf. tók fram, hvað við undir sérstökum ástæðum teldum okkur til knúða að gera, en að lögum erum við ekki skyldir til að láta þær í té.
Það er því ljóst, bæði af þessu og einnig því, sem áður hefur verið skýrt tekið fram í ræðu hæstv. forsrh. og er undirstrikað í nál. utanrrn., að innganga í bandalag sameinuðu þjóðanna leggur engar skuldbindingar á okkur um veitingu herstöðva. Það er samkv. 43. gr. alveg á valdi okkar að ákveða það samkv. stjórnskipunarlögum okkar. Eins og nú er, þá væri það Alþingi, forseti og ríkisstj., sem yrðu að samþykkja það. Hugsanlegt væri, að sett yrðu inn í hina nýju stjórnarskrá ákvæði um, að í slíkum tilfellum þyrfti enn fremur þjóðaratkvæði, og þá kæmi slíkt ekki til, fyrr en allir þessir aðilar hefðu gengið inn á það.
Það er rétt að nefna annað í þessu sambandi. Hv. 3. landsk. þm. hélt því fram, að við, sem sömdum álitsgerðina, hefðum vitandi vits gert of lítið úr skuldbindingum þeim, sem inngangan hefði í för með sér, og minna en Svíar. En í álitsgerð Svíanna kemur t.d. fram, að allar líkur séu til þess, að til aðgerða samkv. 42. og 43. gr. mundi aldrei koma; bandalagið sé þannig byggt, að til þess að þessum aðgerðum verði beitt, þurfi öll fimm stórveldin að vera sammála. Við yrðum aldrei krafðir herstöðva gegn vilja einhvers stórveldisins, en séu þau öll sammála, þá er ólíklegt, að grípa þyrfti til þessara aðgerða til að knýja fram sameiginlegan vilja þeirra.
Ég vil sem sagt taka fram og veit, að það er öllum ljóst, að með inngöngu okkar í bandalagið tökum við ekki skuldbindingar á okkur um að veita herstöðvar.
Ég hef áður haft tækifæri til þess, einkum l. des. s.l., að lýsa afstöðu minni til erlendra herstöðva. Ég býst ekki við, að mér sé minna kappsmál en t.d. hv. 3. landsk. þm., að hér séu engu herstöðvar. Og ég hefði ekki verið fylgjandi inngöngu okkar í bandalag sameinuðu þjóðanna, ég mundi ekki hafa greitt því atkv. hér á þingi, ef ég teldi, að í því fælist skuldbinding um erlendar herstöðvar hér á landi.
Það er vitað, að inntökubeiðnir í bandalag sameinuðu þjóðanna er ekki hægt að binda neinum skilyrðum eða fyrirvörum. Annaðhvort verður að ganga að sáttmálanum óbreyttum og verða meðlimur eða ganga ekki að honum og verða utan bandalagsins. Hið þriðja er ekki til. Till. hv. 3. landsk. þm. er um að binda inntökubeiðni okkar vissum skilyrðum. Að samþykkja þá till. er því alveg sama og að fella beiðnina. Ég geri ráð fyrir, að öryggisráðið hlyti að leggja til hliðar slíka skilorðsbundna beiðni. Samþykkt þessa liðar í till. hv. þm. er því í rauninni sama og að fella beiðnina hér á þingi.
Með síðari hluta till. er lagt fyrir ríkisstj. að krefjast þess, að herlið það, sem enn er í landinu, hverfi á brott nú þegar. Ef til vill mætti skilja þessa till. svo, að einnig þetta atriði væri skilyrði fyrir inntökubeiðninni, en þó er ekki víst, að það sé tilætlunin. Með þessu er blandað inn í þetta mál allt öðru og óskyldu atriði. Inntökubeiðnin fer fyrir öryggisráðið og allsherjarþing sameinuðu þjóðanna. Hitt málið ber að sækja á öðrum vettvangi. Það er samningsmál við stjórn Bandaríkjanna. Ég tel óviðeigandi og óviturlegt að blanda þessum tveimur málum saman í sömu ályktun, og mundi ég þegar af þeirri ástæðu greiða atkv. á móti till. Við þetta bætist, að hæstv. stj. hefur haft þetta mál, brottför herliðsins, til athugunar, og hæstv. forsrh. hefur gefið yfirlýsingu þá, sem allir hv. þm. hafa heyrt, að hún muni svo fljótt sem auðið er hefja viðræður við stjórn Bandaríkjanna um fullnæging og niðurfelling herverndarsamningsins.
Ég taldi rétt að gera grein fyrir afstöðu minni til þessarar till. hv. 3. landsk. þm., því að væntanlega mun það heyrast, ef till. nær ekki samþykki, að ýmsir þeir, sem áður hafi ekki viljað hafa herstöðvar hér, hafi nú brugðizt í málinu og vilji nú hafa herstöðvar og herlið og það sem lengst. Vitanlega er till. hv. 3. landsk. þm. ábyrgðarlaust yfirboð, gert m.a. í þeim tilgangi að spilla fyrir þessu velferðarmáli, að við gerumst aðilar í bandalagi hinna sameinuðu þjóða.
Við Íslendingar vorum ekki meðlimir í gamla þjóðabandalaginu og tókum þá ekki mikinn þátt í alþjóðasamstarfi. En svo fór á stríðsárunum, að við drógumst inn í margháttað alþjóðasamstarf, og aðstaða okkar er nú allt önnur en áður fyrr, svo að segja má, að við séum að þessu leyti komnir á annað tilverustig. Við samanburð á gamla og nýja þjóðabandalaginu verður ljóst, að í hinu nýja er ætlazt til, að friður sé varðveittur með miklu virkari aðgerðum en áður fyrr. M.a. er það þýðingarmikið ákvæði, að nú er það öryggisráðið, sem sker úr, hvort friðrof eða ógnun við friðinn er fyrir hendi frá einhverju ríki, en í hinu fyrra var meðlimum bandalagsins í sjálfsvald sett að meta, hvort það ástand hefði skapazt, að rétt væri að grípa til refsiaðgerða. En um leið og beita má virkari aðgerðum, þá eru líka meiri skyldur lagðar á félagana. Eins og ég gat um, höfum við nú tekið þátt í margvíslegu alþjóðasamstarfi, og í rauninni er innganga okkar í bandalag sameinuðu þjóðanna ekki nema beint framhald þeirrar stefnu, sem hefur verið fylgt undanfarin ár. Ég skal engu spá, hvernig takast muni að koma í framkvæmd hugsjónum bandalagsins um að halda við friði. Það er létt verk og löðurmannlegt að gera sem minnst úr starfi bandalagsins og vekja tortryggni á störfum þess. En við getum ekki lokað augunum fyrir því, að stofnun bandalagsins er merkasta tilraun, sem gerð hefur verið í sögu mannkynsins til þess að vernda frið á jörðu. Og sameinuðu þjóðunum er falið, með stefnuskrá þeirra og sáttmála, að vinna að þeim hugsjónum, sem eiga samkvæmt sögu okkar Íslendinga og aðstöðu allri að vera okkur hjartfólgnari en flestum öðrum þjóðum.