25.07.1946
Sameinað þing: 4. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 126 í B-deild Alþingistíðinda. (292)

1. mál, bandalag hinna sameinuðu þjóða

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. — Þegar farið var fram á það við íslenzku þjóðina af ríkisstj., að Bandaríkin fengju hér leigðar herstöðvar, þá var vísað til þess, að það væri gert af því, að þeir hefðu talið það nauðsynlegt. Ef ég man rétt, þá var það tekið fram, að ef samningar tækjust um þetta og þeir fengju hér herstöðvar, þá mundu þær síðar verða látnar til þjóðabandalagsins, ef samkomulag yrði um það. Muni ég þetta rétt, þá hefur þetta komið af því, að Bandaríkjastjórn hefur litið svo á, að þjóðabandalagið þyrfti að hafa hér herstöðvar. Ég skírskota hér til annarra þm., hvort ekki er hér rétt með farið. En nú heyrir maður, að ríkisstj. telur alveg víst, að aldrei verði farið fram á herstöðvar hér Ég skil þetta ekki. Ég tel alveg víst, að herstöðva verði krafizt, og þá finnst mér mörgum sinnum drengilegra að láta það koma í ljós strax, að upp á það förum við ekki í bandalagið. Það væri miklu drengilegra en að ætla sér að koma aftan að mönnum, eins og ríkisstj. gerir gagnvart þjóðinni í þessu máli. Þetta vildi ég aðeins segja, en skal að öðru leyti ekki lengja þessar umr. Það hefur komið fram, að ætlunin væri að bera upp till. á þskj. 9 í tvennu lagi, en ef svo verður gert, þarf að breyta síðari hlutanum, því að hann er beint framhald af fyrri hlutanum, og ég efast um, að hægt sé að bera hann upp eins og hann er orðaður, eftir að búið væri að fella fyrri hlutann.