25.07.1946
Sameinað þing: 4. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 129 í B-deild Alþingistíðinda. (300)

1. mál, bandalag hinna sameinuðu þjóða

Forseti (JPálm):

Þá verður tekin fyrir brtt. hv. 3. landsk. á þskj. 9. Nokkrir hv. þm. hafa farið fram á, að þessi till. verði borin upp í tvennu lagi, þannig að síðari hlutinn verði borinn upp fyrst, þar sem ekki er hægt að bera upp síðari hlutann, ef áður er búið að fella fyrri hlutann. Kemur þá síðari hlutinn til atkvæða.